![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/saudfjset_bok_IMG_0685-300x225.jpg)
Húsfyllir var á menningardegi í Sauðfjársetrinu í gær. Fjöldi gesta var á fimmta tuginn. Í brennidepli voru Strandir fyrir hundrað árum, 1918, hvar fjallað var um bókmenntir og menningarlíf á Ströndum það herrans ár. Jón sagnamaður Jónsson flutti hressilegt erindi um efnið. Auk alls þessa var fyrsti innfæddi Hólmvíkingurinn, Stefán Sigurðsson, eða Stefán frá Hvítadal einsog hann kallaði sig í kastljósi dagsins. Fyrir skömmu gaf Kómedíuleikhúsið út veglega bók er inniheldur úrval ljóða Stefáns. Elfar Logi Hannesson sagði frá skáldinu og nemendur í grunnskóla Hólmavíkur og félagar úr Leikfélagi Hólmavíkur fluttur nokkur ljóða hins hólmvíska skálds.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/11/IMG_0249-300x200.jpg)