Föstudaginn 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, verður bókasafnadagur á bókasöfnunum á Ísafirði. Bókasöfn Grunnskólans, Menntaskólans og Bókasafnið Ísafirði verða öll með skemmtilega dagskrá síðdegis:
· Bókasafn GÍ kl. 15-15:50: opið hús, upplestur og léttar veitingar.
· Bókasafn Mí kl. 16-16:30: opið hús, upplestur og léttar veitingar.
· Bókasafnið Ísafirði kl. 17-18: Eru til aðrar geimverur? Sævar Helgi Bragason „Stjörnu-Sævar“ ræðir um leitina að lífi í geimnum.
Allir eru velkomnir og þeir sem mæta á öll söfn geta safnað stimplum á geimverukort og eiga þar með möguleika á bókavinning.
Sæbjörg
sfg@bb.is