Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð sem kveður á um greiðslu desemberuppbótar til foreldra langveikra og fatlaðra barna. Óskert desemberuppbót nemur 57.672 kr.Þetta er í annað sinn sem desemberuppbót er greidd foreldrum barna sem eru langveik eða alvarlega fötluð en það var gert í fyrsta sinn í fyrra samkvæmt ákvörðun ráðherra. Reglur um greiðslur eru þær sömu og áður. Foreldri langveiks barns eða alvarlega fatlaðs sem hlotið hefur fjárhagsaðstoð í desember árið 2018, samkvæmt lögum þar að lútandi nr. 22/2006 á rétt á desemberuppbót.Uppbótin er hlutfallsleg þannig að foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf mánuði ársins fær fulla desemberuppbót sem er 57.672 kr. en foreldri sem fengið hefur greiðslur skemur en tólf mánuði á þessu ári á rétt á hlutfallslegri uppbót í samræmi við það. Uppbótin skal þó aldrei nema lægri fjárhæð en 14.418 kr.