Landvernd hefur sent frá sér tilkynningu um afstöðu samtakanna til væntanlegrar lagasetningar í framhaldi af úrskurðum úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál. Kemur þar skýrt fram að Landvernd leggst gegn lagasetningu. Skorað er á tvo ráðherra umhverfis- og auðlindaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að láta af áformum um lagasetningu.
Áskorunin er svohljóðandi:
Stjórn Landverndar telur það mjög alvarlegt fyrir íslenska stjórnsýslu í umhverfisverndarmálum sem fyrir er mjög veik, að ráðherra skuli hlutast til um úrskurði úrskurðanefndar í umhverfis- og auðlindamálum. Það er ákvörðun og áhætta fyrirtækja að hefja starfssemi þrátt fyrir augljósa ágalla á henni sem varða við landslög, eins og það að kostagreinging fór ekki fram. Réttur umhverfisverndarsamtaka til þess að láta reyna á framkvæmda- og starfsleyfi fyrir starfssemi sem hefur skaðlegar afleiðingar fyrir umhverfið fyrir óháðum aðila er lítils virði þegar ráðherrar setja lög á úrskurði þessa óháða aðila. Stjórn Landverndar skorar á Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Umhverfis- og auðlindaráðherra að virða niðurstöðu úrskurðanefndarinnar og láta af áætlunum um lagasetningar sem snúa úrskurði hennar.
Núverandi Umhverfisráðherra var framkvæmdastjóri Landverndar þar til hann tók við embætti ráðherra.