Ísfirðingurinn Sigurður Óli Rúnarsson varð um þarsíðustu helgi Íslandsmeistari í sínum flokki í jiu jitsu. Í fyrsta sinn var keppt í Laugardalshöllinni, en íþróttagreininni hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum. Sigurður Óli keppti í hvítbeltisflokki í þyngdarflokki léttari en 100 kg. Alls voru 102 keppendur á mótinu og voru þrír í keppnisflokki Sigurðar Óla. Var hann sigurorð af þeim báðum og varð því ótvíræður sigurvegari.
Sigurður óli Rúnarsson hefur getur sér gott orð í öðrum íþróttagreinum og lét til dæmis um tíma með ÍR í handknattleik karla i úrvalsdeildinni. Hann sagðist í samtali við bb.is vera búinn að ákveða að einbeita sér að glímunni.
