Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar segir að sveitarstjórn Reykhólahrepps verði að flýta því eins og frekast er unnt að ljúka því að taka ákvörðun um leiðaval um Gufudalssveit. „Íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum geta ekki unað við frekari tafir á þessum framkvæmdum“ segir Iða Marsibil.
Hún segir að málið hafi verið rætt í bæjarráði Vesturbyggðar og bæjarráðið sé einróma í þveirri afstöðu að málið þoli enga bið og bætir við „bæði íbúar og rekstraraðilar á svæðinu verða að sjá fram á að viðunandi grunntenging náist við vegakerfi landsins svo búsetuskilyrði verði viðunandi. Sá mikli vöxtur sem verið hefur í sveitarfélaginu kallar á tafarlausar úrbætur.“