Oddviti Reykhólahrepps, Ingimar Ingimarsson, lýsti því yfir á almennum íbúafundi á Reykhólum þann 28. júní í sumar, þar sem skýrsla norska ráðgjafarfyrirtækisins Multiconsult var kynnt, að ef R leiðin kæmi illa út í samanburði við Þ-H leiðina yrði haldið áfram með Þ-H leiðina.
Nokkrum dögum síðar hélt oddvitinn ásamt varaoddvitanum fund með íbúum á bæjunum Stað og Árbæ og kynnti fyrir þeim þau áform sveitarstjórnar að óska eftir því að Vegagerð ríkisins myndi gera samanburð á Þ-H leiðinni við þá kosti sem Multiconsult benti á, R leiðina og D2 jarðgangaleið.
Kristján Þór Ebenesarson,bóndi á Stað sagði í viðtali við bb.is að oddvitinn hefði á þeim fundi endurtekið ummæli sín og sagt ennfremur að þessi skýrslubeiðni þyrfti ekki að tefja fyrir því að framkvæmdir gætu hafist.
Í þriðja sinn viðhafði oddvitinn Ingimar Ingimarsson þessi ummæli á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis með sveitarstjórn Reykhólahrepps sem haldinn var 7. september.
bb.is hefur sent oddvitanum fyrirspurn um það hvort hann muni nú styðja Þ-H leiðina eftir að skýrsla Vegagerðarinnar er komin fram.
Svar hefur ekki borist.