Í viku 42 voru grafnir 68,2 m í göngunum Dýrafjarðarmeginn. Lengd ganganna í Dýrafirði í lok vikunnar var 102,6 m sem er 6,2% af leggnum sem er eftir og er búið að grafa í heildina 70,3% af göngunum.
Í upphafi vikunnar kom set niður úr loftinu sem var aðeins til vandræða og voru teknar tvær stuttar færur, þ.e. 3 m í stað 5 m, og þurfti að nota netamottur til að styrkja loftið ásamt bergboltum og sprautusteypu. Þegar setið var komið neðar í sniðinu voru aðstæður til graftar góðar og tókst meðal annars að ná tímanum milli sprenginga undir 8 klukkustundir. Efnið úr göngunum hefur verið notað til að stækka plan við steypustöðina.
Í göngunum Arnarfjarðarmeginn var haldið áfram með styrkingar í hægri vegg ganganna. Í lok vikunnar var búið að setja bergbolta á tæplega 1.500 m kafla og sprautusteypa tæplega 800 m langann kafla í heildina.
Engin vegavinna var í gangi í Arnarfirði en í Dýrafirði var lítillega unnið í námum og í veginum. Klárað var að slá upp fyrir nyrðri stöplinum í Mjólkárbrúnni og verður steypt þegar veður leyfir.
Unnið var við að loka og gera klár verkstæði og geymslur ásamt frágangi á skrifstofuhúsnæði.
Á meðfylgjandi myndum má sjá göngin í Dýrafirði.
(Í síðustu viku var ranglega sagt að grafnir hefðu verið 29,4 m, þeir reyndust vera 34,4 m)
Sæbjörg
sfg@bb.is