Vegagerðin hefur sagt frá því að hálkublettir séu á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en hálka á Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Strandarvegi.
Þá er snjóþekja og éljagangur á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á Vatnskarði, Öxnadalsheiði, Héðinsfiðri, í Ólafsfjarðarmúla og á Víkurskarði. Krapi og éljagangur er á Siglufjarðarvegi. Krapi er á Fljótsheiði og Mývatnsheiði. Þæfingsfærð er á Hólasandi.
Þæfingsfærð og snjókoma er á Möðrudalsöræfum og á Fjarðarheiði en krapi á Fagradal og Breiðdalsheiði. Mjög hvasst er á Norðausturlandi.
Nú þurfa vegfarendur að fara að líta á dekkin sín og rétt að þeir líti líka eftir kindum um helgina og fari varlega, þar sem víða fer fram smölun þessa dagana.
Sæbjörg
bb@bb.is