![lions for](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/09/lions-for-696x522.jpg)
Lionsklúbbur Patreksfjarðar hefur í gegnum árin verið öflugur stuðningsmaður við Framhaldsdeildina á Vestfjörðum, sem starfrækt er á Patreksfirði en sem útibú frá Fjölbrautarskóla Snæfellinga.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/09/lions-300x225.png)
Þannig færði Lionsklúbburinn níu nýnemum Framhaldsdeildarinnar bókastyrki upp á 25.000 krónur fyrir hvern nemanda. Að auki færði klúbburinn nemendafélaginu 50.000 króna styrk. Lionsklúbburinn hefur nú styrkt nýnema í nokkur ár og hefur staðið þétt við deildina. Í fyrra afhenti klúbburinn deildinni fjarfundarbúnað sem gerir nemendum kleift að sitja kennslustundir í Fjölbrautarskóla Snæfellinga. Klúbburinn er afar stoltur af þessu verkefni.
Sæbjörg
bb@bb.is