![Pollvinir Mynd Pollvinafélagið Pollvinir frá vinstri Jón Örn Pálsson og Jónas Snæbjörnsson](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/06/Pollvinir-Mynd-Pollvinafélagið-Pollvinir-frá-vinstri-Jón-Örn-Pálsson-og-Jónas-Snæbjörnsson-696x522.jpg)
Unnið er að því þessa dagana að lagfæra og stækka aðstöðuna við náttúrulaugina Pollinn í Tálknafirði. Búið er að stofna svokallað Pollvinafélag og sóttu landeigendur og heimamenn um styrk til sveitarfélagsins fyrir hluta framkvæmdanna. Jarðvegsvinna er hafin og til stendur að bæta við laug og salernisaðstöðu á svæðinu.
Jón Örn Pálsson, Tálknfirðingur og Pollvinur sagði í samtali við BB að stefnt sé að því að ljúka við breytingarnar fyrir Tálknafjör, sumarhátíð Tálknafjarðar sem haldin er annað hvert ár í bænum og verður haldin í lok júní mánaðar. „Við fengum styrk upp á 150.000 til að endurbæta aðstöðuna. Það hefur verið andstaða við það að auglýsa þetta og heimamenn hafa aldrei staðið fyrir því. En þetta er komið í fjölmarga bæklinga og það hefur aukið heimsóknir í Pollinn sem er ánægjulegt en það þarf að bæta aðstöðu í takt við það. Við erum að stefna að því að bæta við laug þarna fyrir Tálknafjör, okkar bæjarhátíð. Stækkunin á lauginni er 45% og því er um að ræða umtalsverða stækkun.“
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2018/06/Pollurinn-Mynd-Pollvinafélagið-300x195.jpg)
Jón Örn segir að reynt sé að fá brottflutta til liðs við Pollvini til að styrkja verkefnið og svo er kominn söfnunarkassi á staðinn. „Svo byggist þetta upp á sjálfboðavinnu. Við erum á fullu að vinna í þessu þessa dagana og allar hendur er vel þegnar.“
Aron Ingi
aron@bb.is