8. maí síðastliðinn samþykkti bæjarstjórn Bolungarvíkurkaupstaðar ársreikning fyrir árið 2017. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð um 47,6 milljónir krónar. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar, segir árangurinn afar góðan og umtalsvert betri en hann hafi verið í langan tíma. Tölurnar sýni glöggt að fjárhagsleg staða sveitarfélagsins hafi styrkst verulega undanfarin ár.
„Skuldahlutfall er 114% og hefur ekki verið lægra frá því byrjað var að nota þann mælikvarða. Skuldir lækkuðu milli ára, hvort sem litið er til heildarskulda sveitarfélagsins eða skuldir á íbúa og veltufé frá rekstri hefur ekki verið hærri í áratugi.“ Jón Páll segir að ljóst sé að mjög góður árangur hafi náðst í fjármálum sveitarfélagsins og hafi gjörbreyst á síðustu tíu árum. „Fjárhagslegur styrkur sveitarfélagsins er forsenda þess að hægt sé að halda úti heilbrigðu og eftirsóknarverðu samfélagi til lengri tíma.“
Jón Páll talar um að árangurinn sé að sjálfsögðu samspil margra þátta. „Starfsfólk Bolungarvíkurkaupstaðar á þar að sjálfsögðu stóran þátt. Ég er þakklátur fyrir að vinna með framúrskarandi starfsfólki, hvort sem um er að ræða stjórnendur eða aðra starfsmenn. Framúrskarandi starfsfólk sem hefur með útsjónarsemi og fórnfýsi búið til þá sterku stöðu sem nú liggur fyrir.“
Margrét Lilja
milla@bb.is