Samtök iðnaðarins boða til opins hádegisfundar á morgun, miðvikudaginn 30. maí kl. 12 á Hótel Ísafirði. Boðið verður upp á súpu.
Á fundinum fara Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, yfir helstu áherslumál Samtaka iðnaðarins og efnt verður til umræðu um atvinnulíf á Vestfjörðum.
Allir eru velkomnir en óskað er eftir skráningu á fundinn. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
Margrét Lilja
milla@bb.is