Í dag, 19. maí, býður listi Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ í grjónagraut og slátur á milli kl. 12 og 14 í húsakynnum Framsóknarflokksins við Pollgötu. Ásmundur E. Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, og Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður, mæta og ræða við gesti um komandi sveitarstjórnarkosningar ásamt frambjóðendum. Þetta kemur fram á facebooksíðu viðburðarins.
Margrét Lilja
milla@bb.is