Við mat á virkjunarkostum við framleiðslu á rafmagni og við aðra uppbyggingu sem felur í sér rask á náttúru er nauðsynlegt að þarfir nærsamfélagsins, umfram aðrar þarfir, séu ætíð hafðar sem mest í forgrunni. Þetta segir í ályktun miðstjórnar Samiðnar – sambands iðnfélaga.
Í ályktuninni er bent á að sterkir innviðir eru forsenda fyrir framþróun sveitarfélaga og byggð í landinu. Í því felst m.a að aðgangur að rafmagni sé tryggur, auk góðra samgangna. Samiðn segir að eigi minni samfélög að geta staðist samkeppni við stærri samfélög verði þau að geta treyst á þessar grunnstoðir nútímasamfélags.
„Víða á Íslandi skortir verulega á að skilyrði um orkuöryggi og öryggi í samgöngum séu uppfyllt. Vernd náttúrunnar og virðing fyrir umhverfinu á að vera grundvallaratriði þegar kemur að mannvirkjagerð og auðlindanýtingu. Það er hins vegar áríðandi að þörfum nærsamfélagsins sé ekki stillt upp sem andstæðu við náttúruvernd,“ segir í ályktuninni.