Framleiðsla í fiskeldi jókst um 38% á nýliðnu ári, miðað við árið á undan, og nam 20.776 tonnum. Tæpur helmingur framleiðslunnar kemur frá Arnarlaxi hf. á Bíldudal. Mest jukust afurðir úr sjókvíaeldi á laxi en hlutfallslega mest jókst regnbogasilungur úr sjókvíum. 86% af öllum laxi sem framleiddur var hér á landi á síðasta ári kom upp úr kvíunum hjá einu fyrirtæki. Þetta kemur fram í umfjöllun Morgunblaðisins. Á síðasta ári foru framleidd 11.265 tonn af laxi, þriðjungi meira en árið áður. Meginhluti framleiðslunnar er úr sjókvíaeldi, þar af nærri 10 þúsund tonn frá Arnarlaxi á Bíldudal.
Fjögur fyrirtæki framleiddu lax, tvö í sjó og tvö á landi. Íslandsbleikja framleiddi nærri 1.200 tonn í landeldisstöð.
Á þessu ári verður aukning í framleiðslunni þegar fyrirtækin á Austfjörðum, Laxar hf. og Fiskeldi Austfjarða, hefja slátrun. Einnig mun framleiðslan aukast á Vestfjörðum og samkvæmt upplýsingum frá Arnarlaxi verður framleiðsla fyrirtækisins í ár um 12 þúsund tonn.