Gangi það eftir, að kosningaréttur verði færður niður að 16 ára aldri, þá munu líklega um átta þúsund nýir kjósendur bætast við kjörskrá fyrir sveitarstjórnakosningarnar í vor. Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir Andrési Inga Jónssyni, þingmanni Vinstri grænna, að hann sé nokkuð bjartsýnn á að það takist að ljúka þessu máli fyrir kosningarnar í voru.
Andrés Ingi er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en að því standa 15 þingmenn úr öllum flokkum.
Fram kemur í greinargerð frumvarpsins að fyrri mál þessa efnis hafa miðað að því að lækka kosningaaldur almennt úr 18 árum í 16 ár, sem krefst þess að gerðar séu breytingar á 33. gr. stjórnarskrárinnar. „Hér er hins vegar lagt til að stíga skrefið til hálfs með því að breyta kosninga- aldri í kosningum til sveitarstjórna sem krefst aðeins einfaldrar laga- breytingar,“ segir í greinargerð.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var fyrsti flutningsmaður samskonar frumvarps í haust.