Gunnar Atli Gunnarsson lögfræðingur og fyrrverandi fréttamaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Gunnar Atli er fæddur og uppalinn á Ísafirði. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði og er með Mag. Jur. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands frá 2015 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 2017. Hann hefur meðal annars starfað sem lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu og sem fréttamaður á Stöð 2. Undanfarið hefur hann starfað sem lögmaður hjá Landslögum lögfræðistofu en lætur nú af störfum þar til að gegna starfi aðstoðarmanns. Gunnar Atli er fæddur árið 1988. Sambýliskona hans er Brynja Gunnarsdóttir tannlæknir og eiga þau tvö börn.