Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof þar sem gert er ráð fyrir að fæðingarorlof verði lengt úr níu mánuðum í tólf.
Lagt er til að sjálfstæður réttur hvers foreldris verði fimm mánuðir og að sameiginlegur réttur foreldra verði tveir mánuðir. Sambærileg breyting er lögð til varðandi fæðingarstyrk til foreldris utan vinnumarkaðar.
Samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins er gert ráð fyrir lengingu fæðingarorlofsins á kjörtímabilinu sem hluta af samtali stjórnvalda við aðila vinnumarkaðarins.