Heimir Hallgrímsson hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt á móti Indónesíu en leikurinn fer fram á Mandala Krida vellinum í Yogyakarta í dag. Heimir er með þrjá nýliða í byrjunarliði sínu en það eru miðjumennirnir Mikael Neville Anderson, Samúel Kári Friðjónsson og síðast en ekki síst bolvíski framherjinn Andri Rúnar Bjarnason.
Leikurinn hefst 11.30 og verður í beinni útsendingu á RÚV.
Undirbúningur liðsins fyrir leikinn hefur gengið vel, en liðið kom til Indónesíu á sunnudaginn. Leikmenn eru að venjast tímamismuninum, en hitinn er mikill og því mikið drukkið af vatni. ,,Þetta eru búnar að vera fínar æfingar, allir hafa verið með og enginn er meiddur. Menn hafa náð að sofa ágætlega, en það er náttúrulega erfitt þegar tímamismunurinn er svona mikill og lítill tími til að jafna sig á honum. Við þjálfararnir erum ánægðir með strákana og hvernig þeir hafa svarað þessum fyrstu tveimur æfingum,“ sagði Heimir Hallgrímsson í gær á vef KSÍ.
Byrjunarlið Íslands:
Markvörður:
Frederik Schram
Vörn:
Viðar Ari Jónsson
Hjörtur Hermannsson
Hólmar Örn Eyjólfsson
Böðvar Böðvarsson
Miðja:
Mikael Neville Anderson
Ólafur Ingi Skúlason (fyrirliði)
Samúel Kári Friðjónsson
Arnór Ingvi Traustason
Sókn:
Albert Guðmundsson
Andri Rúnar Bjarnason