Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi samþykkti í gær framboðslista flokksins fyrir kosningarnar í lok mánaðarins. Guðjón S. Brjánsson leiðir listann áfram. Arna Lára Jónsdóttir, oddviti Í-listans í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, verður í öðru sæti. Hún er ekki ókunn þingstörfum, en hún sat sem varaþingmaður fyrir flokkinn kjörtímabilið 2009-2013.
Kjördæmisþingið var haldið á Hótel Bjarkalundi og var framboðslistinn samþykktur samhljóða.
Listinn í heild sinni:
- Guðjón S. Brjánsson, alþingismaður, Akranesi
- Arna Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar, Ísafjarðarbæ
- Jónína Björg Magnúsdóttir, fiskverkakona, Akranesi
- Sigurður Orri Kristjánsson, leiðsögumaður, Reykjavík
- Gunnar Rúnar Kristjánsson, bóndi, Blöndósbæ
- Guðrún Eggertsdóttir, viðskiptafræðingur, Vesturbyggð
- Sólveig Heiða Úlfsdóttir, háskólanemi, Borgarbyggð
- Garðar Svansson, fangavörður, Grundarfjarðarbæ
- Ingimar Ingimarsson, organisti, Reykhólahreppi
- Pálína Jóhannsdóttir, kennari, Bolungarvík
- Pétur Ragnar Arnarsson, slökkviliðsstjóri, Húnaþingi vestra
- Guðjón Viðar Guðjónsson, rafvirki, Akranesi
- Guðrún Vala Elísdóttir, náms- og starfsráðgjafi, Borgarbyggð
- Helgi Þór Thorarensen, prófessor, Sauðárkróki
- Inga Björk Bjarnadóttir, háskólanemi, Borgarbyggð
- Sigrún Ásmundsdóttir, iðjuþjálfi, Akranesi
smari@bb.is