Ferðamönnum á Íslandi fjölgar um 11% á næsta ári og verða þeir í heildina 2,5 milljónir gangi spár greiningardeildar Arion banka eftir. Helsti óvissuþátturinn er þróun flugframboðs á næstu árum.
Spá greiningardeildar var kynnt á fundi í höfuðstöðvum Arion banka í morgun. Grunnsviðsmyndin sýnir 11% fjölgun árið 2018, 8% fjölgun árið 2019 og 6% árið 2020 og verða ferðamenn þá orðnir 2,8 milljónir. Fleiri ferðamenn auka ekki aðeins tekjur þjóðarbúsins heldu bendir greiningardeildin á að fleiri ferðamenn auka álag á innviði og kalla á aukna þjónustu. Sterk króna hefur haft áhrif á dvalartíma auk neyslu- og ferðamynstur en endanleg áhrif gengisstyrkingar liggja ekki enn fyrir að því er kemur fram í spá greiningardeildar Arion banka. Rekstur ferðaþjónustufyrirtækja stendur almennt vel en greiningardeildin telur að breyttar aðstæður leiði til verulegra áskorana.
Bjartsýnasta sviðsmynd Arion banka sýnir talsvert meiri fjölgun en áður er getið um, eða um 18,4% á næsta ári, 15,3% árið 2019 og 13,6% árið 2020. Þá myndi fjöldi ferðamanna skaga hátt upp í 3,5 milljónir. Gert er ráð fyrir að flugfélög vaxi af álíka krafti og undanfarin ár, samhliða því að
erlend flugfélög auka framboð sitt talsvert líkt og síðustu ár.
Ef aðstæður þróast á þann veg að flugfélög, bæði erlend og innlend, draga úr flugframboði sínu breytist myndin. Svörtustu spár greiningardeildar sýna 7% lækkun á næsta ári, 10% árið 2019 og 12% árið 2020. Væri fjöldi ferðamanna þá kominn niður í 1,6 milljónir sem þó væri enn meiri fjöldi en árið 2015.
smari@bb.is