Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn eru með jafnt fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem gerð var í gær. Hvor flokkur fengi um 23 prósent.
Píratar eru þriðji stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni en 13,7 prósent svarenda segjast myndu kjósa flokkinn. Flokkur fólksins fengi tæp 11 prósent og Framsóknarflokkurinn fengi rúm 10 prósent. Þá fengi Björt framtíð rúm 7 prósent og Viðreisn og Samfylkingin fengu rúm 5 prósent.
Yrðu þetta niðurstöðurnar fengju átta flokkar menn kjörna á þing. Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn fengju 15 þingmenn hvor, Píratar fengju 9 þingmenn, Framsóknarflokkurinn og Flokkur fólksins fengju 7 menn hvor, Björt framtíð héldi í horfinu með fjóra þingmenn. Þá fengju Viðreisn og Samfylkingin þrjá menn hvor.
Þetta myndi þýða töluverðar breytingar á þingstyrk flokkanna. Í kosningunum í fyrra fékk Sjálfstæðisflokkurinn 21 þingmann, Vinstri græn og Píratar 10 þingmenn hvor, Framsóknarflokkurinn 8 þingmenn, Viðreisn 7, Björt framtíð 4 þingmenn og Samfylkingin þrjá þingmenn kjörna.
smari@bb.is