Fiskeldismál hafa verið í brennidepli umræðunnar og á morgun miðvikudag stendur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið fyrir opnum morgunfundi um áhættumat Hafrannsóknastofnunar vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi sem stofnunin gaf út í sumar.
Frummælendur á fundinum eru Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, dr. Geir Lasse Taranger vísindamaður við systurstofnun Hafró í Noregi og Bára Gunnlaugsdóttir starfsmaður Stofnfisks.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra stýrir fundinum.
Fundurinn verður í sal atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og hefst kl. 9.
Íbúar við Ísafjarðardjúp eru eflaust áhugasamir um fundinn, enda kom matið illa við fyrirhugað laxeldi í Djúpinu. Fyrir áhugasama sem ekki eiga heimangengt verður fundurinn verður í beinni útsendingu á Facebooksíðu ráðuneytisins.
smari@bb.is