Það er í dag sem hátíðarsprenging Dýrafjarðarganga fer fram. Dagskráin við gangamunna Arnarfjarðarmegin hefst kl. 14:15 með Barbörathöfn en Barbara er verndardýrlingur námumanna hjá kaþólikkum og jarðgangamenn teljast námumenn í þessu tilfelli. Í Arnarfirði eru það Tékkar sem grafa og hafa þá venju að setja líkneski við gangamunna og helga líkneskið í upphafi verks með sérstakri athöfn. Síðan verður boðið upp á kaffiveitingar og ávörp en sjálf sprengingin er áætluð kl. 16:00.
Til upplýsingar má nefna að gert er ráð fyrir að bílum sé lagt á þjóðveginn fyrir neðan munnasvæðið og verð settar upp sérstakar vegmerkingar vegna þess.
Það var árið 1996, þann 14. september sem haldin var formleg vígsluathöfn í Vestfjarðargöngum svo það er vel við hæfi að hátíðarsprenging Dýrafjarðarganga falli á sama dag.
Dagskráin.
14:15 Barböruathöfn við stafn ganga
14:45 Kaffiveitingar í skemmu verktaka á verkstað
Ávörp: Ráðherra, vegamálastjóra, fulltrúar verktaka og sveitarstjórnar
16:00 Hátíðarsprenging – áætluð
Dagskrá í skemmu verktaka heldur áfram og ræðuhöldum lýkur
17:00 Formlegri dagskrá líkur.
bryndis@bb.is