Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum landsins hefur aukist um 126 þúsund krónur á milli ára, miðað við september 2016 og sama mánuð í ár.
Samkvæmt tölum frá Hagstofunni er meðalkostnaður á hvern grunnskólanema 1.806.951 kr. í þessum mánuði en var 1.680.683 kr. í september 2016, hækkun um 7,5%.
Við útreikninga sína tekur Hagstofan mið af almennum launahækkunum starfsmanna grunnskóla og breytingum á vísitölu neysluverðs, að teknu tilliti til vægis hvors þáttar fyrir sig í rekstrarkostnaði grunnskólanna.
smari@bb.is