Stjórn Landssambands smábátaeigenda beinir því til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur sjávarútvegsráðherra að aflaviðmiðun til strandveiða verði hækkuð þannig ekki komi til stöðvunar veiða í ágúst.
„Strandveiðar 2017 hafa ekki uppfyllt þær væntingar sem þátttakendur gerðu til þeirra,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar LS fyrir helgi. „Þrátt fyrir að ellefu prósent færri stundi veiðarnar í ár en í fyrra, fækkun um 72 báta, og því meira sem kemur í hlut hvers og eins er aflaverðmæti nú fjórðungi lægra en í fyrra. Hrun fiskverðs og ónægar veiðiheimildir eru helstu orsakavaldarnir.“
Í ályktuninni bendir stjórnin á að vegna vinnustöðvunar á fiskveiðiárinu verður þorskafli nokkuð undir því sem aflaregla gerir ráð fyrir að veitt verði, 244 þúsund tonn. „Samkvæmt tölum Fiskistofu var þorskafli á fiskveiðiárinu þann 21. júlí 212 þúsund tonn, sem er um 17 þúsund tonnum minna en á sama tíma á fiskveiðiárinu 2015/2016,“ segir þar.