Góð þátttaka hefur verið í skipulagðar göngur Ferðafélags Ísfirðinga í sumar. Um síðustu helgi gengu tæplega 30 manns frá Flæðareyri yfir í Grunnavík undir leiðsögn hins glögga og fróða Smára Haraldssonar.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2017/08/Flæðareyri-Grunnavík-Ó.-smári-1024x682.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2017/08/Staður-í-Grunnavík-Ó.-Smári-Kristinsson-1024x683.jpg)
Næsta laugardag á svo að ganga úr Hjarðardal í Dýrafirði um Mjódal inn af Bjarnadal og að Kirkjubóli í Bjarnadal í Önundarfirði. Fararstjóri í þeirri göngu er Emil Ingi Emilsson.
Um Verslunarmannahelgina var árleg gönguhátíð í Súðavík og að sögn göngustjóra hátíðarinnar var gríðargóð þátttaka eða um 400 manns sem mættu í viðburðina en um 130 sem tóku þátt í göngum. Það voru fjölbreyttar göngur í boði þá helgina, frá Skötufirði og í Heydal í Mjóafirði, Sauratindar-Skák-Sauradalur, Seljalandsdalur-Þjófaskörð-Syðridalur og að venju var gengið á Kofra.
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2017/08/Gönguhátið-1-2017-Feðginin-Gyða-og-Barði-Einar-Skúlason-1024x768.jpg)
![](https://www.bb.is/wp-content/uploads/2017/08/Gönguhátíð-2-2017-Guðbjartur-með-Álftafjarðarbotn-í-baksýn-Einar-Skúlason-1024x768.jpg)
Nálgast má allar upplýsingar um ferðir Ferðafélags Ísfirðinga á Facebook síðu þess.
bryndis@bb.is