Fram fór í blíðviðrinu landsleikur í knattspyrnu milli Drangsness og Hólmavíkur. Heimamenn eru voru hvítklæddir og spiluðu sambabolta og rúlluðu Hólmvíkingunum upp 7:4 Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Nítjánda Bryggjuhátíðin á Drangsnesi fór fram um helgina og var gríðargóð mæting. Hátíðin var síðast árið 2013 og engu líkara en margir hafi beðið eftir að komast á hátíðina því talið er að um 1500 manns hafi mætt . Veðrið lék við gesti, milt og stafalogn.
Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg, Drengjakór íslenska lýðveldisins kom að sunnan og skemmti gestum með kraftmiklum söng inni í frystihúsi þar sem hljómburður þótti afburða fínn. Drangsnesingar buðu gestum að smakka fjölbreytt sjávarfang, til dæmis grásleppubollur, selspik og skötustöppu.
Landsleik Drangsness og Hólmvíkur lyktaði með yfirburðasigri heimamana, 7:4
Kvöldinu lauk svo með kvöldskemmtun í Félagsheimilinu Baldri, fyrir troðfullu húsi og síðan var sest út í guðsgræna náttúruna við varðeld og brekkusöng.
Maður leiksins var að sjálfsögðu úr liði Drangsnesinga og hvað annað en kona! Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Drengjakór íslenska lýðveldisins kom sunnan úr Hafnarfirði og skemmti gestum með kraftmiklum söng. Sungið var inn í frystihúsinu og hljómburður var fínn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Röðin að hlaðborðinu. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Ísfirðingar voru mættir! Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Á varðeldinum er það Ragnar Torfason frá Trékyllisvík sem ræður ríkjum og allt hans fólk. Með honum voru sonur hans og bróðursonur sem spiluðu og sunga ýmsa græskulausa skátasöngva og annað fleira með tilheyrandi sprelli með brekkugestu. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Fram fór í blíðviðrinu landsleikur í knattspyrnu milli Drangsness og Hólmavíkur. Heimamenn eru voru hvítklæddir og spiluðu sambabolta og rúlluðu Hólmvíkingunum upp 7:4 Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Hestaleiga var á staðnum og unga kynslóðin nýtti sér það óspart. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Kvöldskemmtun í Félagsheimilinu Baldri. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Kvöldskemmtun í Félagsheimilinu Baldri. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson
Að lokinni kvöldskemmtuninni var varðeldur og brekkusöngur. A.m.k. 800 manns voru í brekkunni það kvöld. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson