Hagstofa Íslands hefur áætlað meðalrekstrarkostnað á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum landsins fyrir þetta ár. Samkvæmt útreikningum stofnunarinnar er árlegur rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum, sem reknir eru af sveitarfélögum, nú 1.840.468 krónur.
Í frétt á vef Hagstofunnar segir að meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum árið 2015 hafi verið 1.651.002 krónur og er vegin meðalverðbreyting rekstrarkostnaðar frá 2015 til júlí 2017 áætluð 11,5%.
Er Hagstofunni gert, samkvæmt reglugerð um ákvörðun framlaga úr sveitarsjóði til sjálfstætt rekinna grunnskóla, að skila frá sér útreikningi vegna komandi skólaárs fyrir september ár hvert.