Erfðanefnd landbúnaðarins hefur þungar áhyggjur af stöðu íslenskra laxastofna vegna mögulegra áhrifa laxeldis í sjókvíum með stofni af erlendum uppruna. Nefndin ráðleggur stjórnvöldum að stöðva útgáfu leyfa til laxeldis í sjókvíum a.m.k. þar til nánari þekkingar hefur verið aflað á umhverfisáhrifum núverandi eldis í sjó að meðtöldu því sem þegar hefur verið leyft. Forgangsaðgerðir í þessu skyni eru vöktun á hlutdeild eldislaxa í laxám á og við fiskeldissvæði ásamt vöktun á erfðablöndun.
Með hliðsjón af almennri stöðu þekkingar um áhrif eldislaxa á villta laxastofna og varúðarreglu samkvæmt 9. grein náttúruverndarlaga þá leggst nefndin gegn notkun á frjóum, norskum eldislaxi í sjókvíaeldi við Íslandsstrendur. Nefndin telur að eldi á frjóum laxi í sjókvíum geti valdið óafturkræfum breytingum á erfðasamsetningu íslenskra laxastofna með ófyrirséðum afleiðingum.
Að mati nefndarinnar getur óbreytt stefna ekki samrýmst markmiðum laga um fiskeldi, laga um náttúruvernd og samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni sem leggur áherslu á að vernda lífríki á öllum skipulagsstigum þess, þar með talið þeirra erfðaauðlinda sem lífríkið býr yfir.
Erfðanefndar landbúnaðarins hefur það að meginhlutverk að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.