„Við lýsum bókstaflega yfir stríði gegn skattsvikum. Á sama tíma munum við taka höndum saman við aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir gegn kennitöluflakki. Við erum því að hefja stórsókn gegn svikastarfsemi á öllum sviðum,“ sagði Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra á blaðamannafundi í morgun þar sem aðgerðir gegn skattsvikum voru kynntar.
Tveir starfshópar um aðgerðir gegn skattsvikum hafa verið starfandi í ráðuneytinu, annar hefur beint sjónum að milliverðlagningu í utanríkisviðskiptum og hinn að skattundanskotum og skattsvikum.
Árlegt tekjutap ríkissjóðs vegna óeðlilegrar milliverðlagningar tengdra lögaðila getur verið á bilinu 1 til 6 milljarðar króna.
Samkvæmt nýlegum rannsóknum má ætla að skattaundanskot gætu verið á bilinu 3-5% af landsframleiðsl. Sé miðað við að umfang skattundanskota hafi verið 4% árið 2016 þá námu þau um 100 milljörðum króna.
Meðal þess sem lagt er til að er reisa skorður við notkun reiðfjár. Lagt er til að 10.000 króna seðillinn verði tekinn úr umferð strax og 5.000 króna seðillinn einnig í náinni framtíð.