Ísfirski knattspyrnumaðurinn Matthías Vilhjálmsson skoraði sigurmark norska liðsins Rosenborg sem vann finnska liðið HJK Helsinki í æfingamóti á Marbella í gær þar sem lokatölur urðu 2:1. Matthías var í byrjunarliðinu hjá Rosenborg og skoraði sigurmarkið þegar komið var í uppbótartíma.
FH, fyrrverandi félag Matthíasar, leikur einnig á mótinu en liðin mætast á sunnudaginn. Þar gæti danski sóknarmaðurinn Nicklas Bendtner leikið sinn fyrsta leik eftir að hann gekk í raðir Rosenborg eftir skrautlega feril á Englandi, Ítalíu og Þýskalandi.