Ferðamálastofa, fyrir hönd Vakans, og Alþýðusamband Íslands skrifuðu í vikunni undir samstarfssamning með það að markmiði að þátttakendur í Vakanum starfi eftir gildandi kjarasamningum. Með þessu er leitast við að styrkja það hlutverk Vakans að byggja upp samfélagslega ábyrgð innan ferðaþjónustunnar. Í samningnum er kveðið á um að þegar fyrirtæki sækir um þátttöku í Vakanum, verði aflað upplýsinga hjá ASÍ um hvort alvarlegur ágreiningur sé á milli viðkomandi fyrirtækis og stéttarfélaga sem starfsmenn þess tilheyra. Jafnframt mun ASÍ í byrjun hvers árs fara yfir þátttakendalista Vakans þannig að tryggt sé, eins og kostur er, að þátttakendur séu ekki brotlegir við kjarasamninga og lög um réttindi starfsmanna. Séu gerðar alvarlegar athugasemdir vegna brota fyrirtækis á gildandi kjarasamningum, getur það ekki verið þátttakandi í Vakanum fyrr en úr hefur verið bætt.
Síðasta haust sendu ASÍ og Samtök atvinnulífsins yfirlýsingu um sameiginlega ábyrgð á uppbyggingu vinnumarkaðarins. Þar kemur m.a. fram að það sé sameiginlegt viðfangsefni aðila að fyrirtæki í framleiðslu og þjónustu greiði laun og starfskjör í samræmi við kjarasamninga og er þá verið að horfa til aukningu á starfskröftum sjálfboðaliða. Þá var sérstaklega rætt um mikilvægi þess að sameiginlegur skilningur ríkti um störf sjálfboðaliða og hvar þau geti átt rétt á sér, s.s. í þágu almannaheilla að góðgerðar-, menningar- eða mannúðarmálum. Áréttað er að það sé andstætt kjarasamningum og meginreglum á vinnumarkaði að sjálfboðaliðar gangi í almenn störf launafólks í efnahagslegri starfsemi fyrirtækja, eins og það er orðað. Hafa einnig Starfsgreinasamband Íslands og Bændasamtök Íslands undirritað sambærilegt samkomulag.