Í síðustu viku funduðu fulltrúar Landssambands smábátaeigenda (LS) með atvinnuveganefnd Alþingis. Á fundinum var farið yfir helstu áherslumál félagsins sem viðkoma breytingum á lögum um stjórn fiskveiða og reglugerðum. Auk þess var landssambandið kynnt, enda margir nefndarmanna á sínu fyrsta ári í þingmennsku.
Mesta áherslan var lögð á strand- og makrílveiðar. Einnig voru ræddar kröfur LS um að auka heildarafla í þorski, um línuívilnun, byggðakvóta, veiðigjald og samþykktir aðalfundar, svo eitthvað sé nefnt.
Hvað viðkemur strandveiðum var lögð áhersla á mikilvægi þeirra í að auka sátt um stjórnkerfi fiskveiða og fyrir hinar dreifðu byggðir, leið fyrir nýliða til að hefja útgerð. Allir þessir þættir mundu eflast ef krafa LS um „fernuna“ svokölluðu, en það er heiti yfir samfelldar strandveiðar í fjóra mánuði (maí – ágúst), fjóra daga í viku) næði fram að ganga. Þó að afli ykist yrði það ekki í beinu samhengi við fjölgun daga, þar sem sókn og viðhorf myndi gjörbreytast að mati LS. Að lokum var lögð áhersla á að strandveiðar hefðu ekki notið þeirrar aukningar sem orðið hefði á þorskkvótanum frá árinu 2011.
Varðandi makrílinn var ítrekuð áhersla félagsins um að aflétta öllum veiðitakmörkunum á færaveiðar þar til hlutdeild smábáta í heildarafla nær 16%.
smari@bb.is