Á sunnudagskvöldið kl 20 verður ljósamessa í Ísafjarðarkirkju. Þá verður kirkjan fyllt af logandi ljósum, ljós kveikt á kertaaltarinu og neytt heilagrar kvöldmáltíðar. Sérstakur gjörningur verður í kirkjunni þar sem tónlist og myndlist verða fléttuð saman. Tuuli Rähni mun leika spuna á orgelið. Sr. Magnús Erlingsson þjónar fyrir altari.
smari@bb.is