Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur boðið út gerð viðlegustöpuls á Mávagarði á Ísafirði. Stór olíuflutningaskip hafa átt örðugt með að liggja við Mávagarð í vissum vindáttum þar sem hætta er á að skutur skipanna reki upp í grjótgarðinn. Allt frá því að hafnarmannvirkið á Mávagarði var tekið í notkun hefur hafnarstjórn lagt þunga áherslu á að leysa þetta brýna vandamál. Tilboð verða opnuð 31. janúar og verklok skulu vera 1. Júlí 2017.
smari@bb.is