Sáttafundur hefur verið boðaður í kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna á föstudaginn. Upp úr viðræðum sjómanna og útvegsmanna slitnaði mánudaginn 23. janúar, fyrir rúmri viku. Samkvæmt lögum ber ríkissáttasemjara að boða til sáttafundar innan tveggja vikna frá viðræðuslitum. Sjómenn hafa verið í verkfalli síðan 14. desember.
smari@bb.is