Sælkeri vikunnar – Ásgeir Sigurðsson frá Ísafirði. | 06.04.2012Krispí tandoori kjúlli með arfagumsi
„Ég nenni yfirleitt ekki að nota uppskriftir og elda yfirleitt bara eitthvað random sjitt úr því sem til er þá stundina. En þar sem tiltölulega stutt er síðan ég eldaði þetta þá man ég í grófum dráttum eftir því hvað ég notaði. Þetta var bragðgott og reyndist vinsælt á heimilinu, og er ekki einu sinni neitt hryllilega óhollt ef einhver er að spá í svoleiðis hlutum.“
Krispí tandoori kjúlli með arfagumsi
Heill kjúklingur
Tandoori krydd
Smjör
Allskonar arfi (eftir smekk)
Sojasósa
Mango chutney.
Kjúlli
Skola óþverrann af kjúklingnum og þurrka svo bleytuna af. Velta honum upp úr tandoori þangað til að hann er orðinn skærrauður og smyrja með bræddu smjöri. Salt, pipar eða bara hvaða krydd sem ykkur þykir gott virkar líka. Blasta hann í ofni á hæsta mögulega hita í ca 15 mín, svo skvetta smá vatni yfir hann og lækka hitann í 160-170 gráður.
Ég lét hann standa á grind en ekki í sullinu, en ef þið fílið að láta hann liggja í eigin soði, þá fordæmi ég ykkur ekki.
Tíminn í ofninum ræðst af stærð kjúklingsins, en kjúlli í stærra lagi mætti alveg vera klukkutíma í það heila. Taka út og láta standa í 5-10 mín áður en hann er skorinn. Nota safann sem rennur af sem sósu en fleyta fitunni af ef þið fyrirlítið svoleiðis. Smjörið og blastið í upphafi skila gríðarlega krispí húð.
Arfagums
Ég er engin sérstök arfaæta og þarf því yfirleitt að beita sköpunargáfunni til að gera hann svo mér þyki hann ætur. Með smá trixum er jafnvel hægt að gera hann mjög bragðgóðan!
Gulrætur, sætar kartöflur, paprikur, rauðlaukur, hvítlaukur og hvað sem er sem gengur að steikja, skorið í ræmur, stærð hverra fer eftir smekk. Ég t.d. miða við ca. meðalalsstærð franskra kartaflna. Allt steikt á pönnu upp úr olíu eða smjöri, en sniðugt er að byrja á þeim tegundum sem þurfa smá tíma til að linast. Þegar allt er orðið örlítið soðið upp úr eigin safa, skvetta sojasósu yfir til að fá smá kikk í þetta og svo mango chutney eftir smekk. Jafnvel er fínt að setja dass af karrí út á þetta og allt hrært saman og smakkað til.
Pudding royal de caramel
Royal karamellubúðingur
Lesa leiðbeiningarnar á pakkanum.
Helst kysi ég að hefna mín á Freysteini Gíslasyni með því að skora á hann aftur en það má víst ekki. Ég skora því á Gunnar Briem, trésmið og háskólastúdent frá Ísafirði, að koma með næstu kræsingar.