mbl.is | 17.04.2009Eiður Smári í hópnum hjá Barcelona
Eiður Smári Guðjohnsen er í 19 manna leikmannahópi Barcelona sem Josep Guardiola þjálfari liðsins valdi fyrir leikinn gegn Getafe á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu annað kvöld. Ekkert pláss er í hópnum fyrir Hvít-Rússann Aliaksandr Hleb en þrír markverðir eru í hópnum þar sem ekkert er víst hvort Victor Valdez geti leikið með vegna meiðsla.
Barcelona er sem fyrr í toppsæti deildarinnar en liðið hefur sex stiga forskot á erkifjendur sína í Real Madrid. Getafe er í 14. sæti deildarinnar, er 41 stigi á eftir Börsungum.