 Mysterious Marta í hlöðunni í Arnardal. |
bb.is | 22.10.2007Hlöðutónleikar í Heimabæ
Trúbadorarnir Mysterious Marta og Svavar Knútur ætla að halda hlöðutónleika í Heimabæ í Arnardal kl. 16:30 á laugardag. „Það er frítt inn og ekkert aldurstakmark og hugmyndin er að þetta séu tónleikar fyrir alla. Það verður bara svona „kósý stemmning“ og við viljum endilega að fólk komi með börnin sín en á staðnum verða leikföng fyrir til að leika sér með í möl. Við viljum þó hvetja fólk til að koma vel klætt og taka jafnvel með sér teppi til að hjúfra sig undir“, segir Mysterious Marta. Nemendur í 10. bekk Grunnskólans á Ísafirði verða með kakó- og vöfflusölu. Sætaferðir verða farnar frá Landsbankaplaninu á Ísafirði frá kl. 16 og kosta þær 500 krónur báðar leiðir.
Tónleikarnir eru liður í menningar- og listahátíðinni Veturnætur sem hefst á fimmtudag.
thelma@bb.is