Svipmyndir

Látið vita

Látið vita af mannfagnaði
eða sendið inn myndir

 Lesendur BB-vefjarins eru hvattir til að láta vita af myndvænum fagnaði af hvaða tagi sem er, svo sem afmælisveislum, árshátíðum og brúðkaupum, gæsagildum og steggjastandi, lautarferðum, götugleði og þorrablótum. Þá er ekki að vita nema ljósmyndari komi og taki myndasyrpu til birtingar hér á vefnum.

Einnig er gott og þakkarvert að fá sendar myndasyrpur frá slíkum viðburðum en þá verða myndirnar að vera mjög góðar og skýrar. Hafið samband varðandi stafrænar myndir, stærð þeirra og sendingu, þannig að tryggt sé að hægt verði að nota þær. Helst verða líka að fylgja nöfn þeirra sem eru á myndunum og vitneskja um samþykki þeirra fyrir birtingu.

Það má fólk líka vita, að þegar ljósmyndari Bæjarins besta er við störf í mannfagnaði, þá má allt eins búast við birtingu. Ef vera kynni að einhver vildi ekki að mynd af honum birtist, þá nefnir hann það að sjálfsögðu. Hins vegar er fátítt að fólk á góðri og glaðri stund vilji ekki láta taka eða birta af sér mynd!

Sendið ábendingar um myndverðan mannfagnað í netpósti til Bæjarins besta eða hringið í síma 456 4560.


Galdrastef í Bjarnarfirði á Ströndum

Fjölskyldu- og menningarhátíðin Galdrastef á Ströndum var haldin í Bjarnarfirði helgina 10.-12. ágúst sl. Aðstandendur hátíðarinnar segja hana hafa tekist með miklum ágætum þó ljóst sé að nokkurt fé hafi tapast við að halda hana. „Þetta gekk alveg hreint frábærlega og við erum mjög kátir“, segir Jón Jónsson, formaður Strandagaldurs sem ...
Meira

Sólbakka- og Sandshátíð 2001

Sólbakka- og Sandshátíð, sem haldin var í Önundarfirði helgina 3.-5. ágúst tókst með miklum ágætum. Á Ingjaldssandi voru haldnir dansleikir, sameiginleg grillveisla og margt fleira. Á Sólbakka var framkallaður eldur og reykur til að minnast þess að 100 ár eru liðin síðan hvalveiðistöð Hans Ellefsen á Sólbakka brann. Tendruð voru 100 ...
Meira

340 konur tóku þátt í Kvennahlaupinu

Kvennahlaup ÍSÍ var haldið um land allt laugardaginn 16. júní sl. Á Ísafirði byrjuðu konurnar á að hita upp undir stjórn Guðríðar Sigurðardóttur, íþróttakennara, og klukkan 14 tóku þær til við að hlaupa og skokka. Það var Blakfélagið Skellurnar á Ísafirði sem stóð fyrir Kvennahlaupinu á Ísafirði og í Súðavík. „Ég ...
Meira

Árgangur ´75 hittist á Ísafirði

Árgangur ´75 á Ísafirði hélt upp á tíu ára gagnfræðaskólaafmæli um helgina. Fólkið hittist í Grunnskólanum á Ísafirði þar sem Þóra Karlsdóttir kennari tók á móti þeim og las upp nöfn skólasystkinanna. Svo var haldið í rútu inn í kirkjugarðinn í Engidal. Þar hitti fólkið fjölskyldu Sverris Karls Stefánssonar sem lést ...
Meira

20 ára fermingarafmæli 1967 árgangsins

Þau sem fermdust á Ísafirði fyrir 20 árum komu saman í lok maí. Fólkið hittist á Silfurtorgi síðdegis á föstudegi og fór sjóleiðina inn í Reykjanes. Þar var farið í sund og keppt í handbolta, stelpur á móti strákum. Að vísu voru strákarnir ívið færri en stelpurnar. Þegar komið var til ...
Meira

20 ára gagnfræðingaafmæli á Ísafirði

Nú þegar vorið er komið og skólum er að ljúka er alltaf jafn vinsælt að halda upp á gagnfræðaútskriftir eldri árganga. Þá koma allir aftur í heimabæinn og útskriftarhópurinn heldur saman upp á töp sín og sigra síðastliðin ár. Föstudaginn 18. maí hittist ?65 árgangurinn til að halda upp á 20 ...
Meira

Rokkhátíðin Menntstock IX hjá MÍ

Menntstock, rokkhátíð Menntaskólans á Ísafirði, var haldin í níunda sinn föstudaginn 18. maí sl.. Að þessu sinni var hátíðin haldin á sal MÍ og var mæting áhorfenda ágæt. Nokkuð var af ungu fólki í þvottabjarnabúningum. Þar voru á ferð nemendur sem höfðu þá um daginn verið brottsendir úr skóla (dimitteraðir) til ...
Meira

30 ára fermingarafmæli 57 árgangsins á Ísafirði

Árgangur ´57 fagnaði 30 ára fermingarafmæli á Ísafirði helgina 18. til 20. maí sl. Fermingarbörnin hittust í kaffisal Pólsins á föstudagskvöld og dönsuðu og hlógu fram undir morgun. Daginn eftir skoðuðu þau gamla skólann sinn og fóru svo í rútuferð. Fyrst var farið í kirkjugarðinn í Engidal þar sem minnst var ...
Meira

Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir fimmtugur

Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði, varð fimmtugur föstudaginn, 11. maí. Klukkan sex um morguninn safnaðist starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ að heimili hans og vakti heimilisfólk og nágranna með látum og söng. Þar voru samankomnir fulltrúar allra deilda stofnunarinnar og settu þeir afmælisbarnið í hjólastól og óku því í broddi skrúðgöngu út ...
Meira

Kiwanisklúbburinn Básar á Ísafirði 25 ára

Tuttugu og fimm ára afmælishátíð Kiwanisklúbbsins Bása á Ísafirði var haldin laugardaginn 12. maí sl., í hinu nýja húsi klúbbsins. Í vor keypti klúbburinn Sigurðarbúð við botn Skutulsfjarðar og var ákveðið að halda ekki upp á afmælið, sem í rauninni var 31. mars, fyrr en búið væri að standsetja húsnæðið. Einnig ...
Meira

Skíðafélagsballið í Krúsinni

Skíðafélagsballið, sem var frægur viðburður á Ísafirði á fyrri tíð, var haldið í Krúsinni laugardagskvöldið 5. maí sl. Fyrr um daginn höfðu skíðamenn margir hverjir tekið þátt í Fossavatnsgöngunni. Á ballinu lék hljómsveitin Gildrumezz lög eftir Creedence Clearwater Revival. „Þetta var frábært. Það er ekki hægt að segja annað en að ...
Meira

Hauganeslyftan í Tungudal tekin í notkun

Hauganeslyftan nýja á skíðasvæði Ísfirðinga var fyrir nokkru tekin í notkun til reynslu og hefur verið mikið notuð. Formleg gangsetning fór hins vegar ekki fram fyrr en við hátíðlega athöfn sunnudaginn 15. apríl sl. Þá kom Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vestur og flutti ávarp. Hjónin Sigríður Brynjólfsdóttir og Ásgeir Guðbjartsson gáfu eina ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli