Svipmyndir

Látið vita

Látið vita af mannfagnaði
eða sendið inn myndir

 Lesendur BB-vefjarins eru hvattir til að láta vita af myndvænum fagnaði af hvaða tagi sem er, svo sem afmælisveislum, árshátíðum og brúðkaupum, gæsagildum og steggjastandi, lautarferðum, götugleði og þorrablótum. Þá er ekki að vita nema ljósmyndari komi og taki myndasyrpu til birtingar hér á vefnum.

Einnig er gott og þakkarvert að fá sendar myndasyrpur frá slíkum viðburðum en þá verða myndirnar að vera mjög góðar og skýrar. Hafið samband varðandi stafrænar myndir, stærð þeirra og sendingu, þannig að tryggt sé að hægt verði að nota þær. Helst verða líka að fylgja nöfn þeirra sem eru á myndunum og vitneskja um samþykki þeirra fyrir birtingu.

Það má fólk líka vita, að þegar ljósmyndari Bæjarins besta er við störf í mannfagnaði, þá má allt eins búast við birtingu. Ef vera kynni að einhver vildi ekki að mynd af honum birtist, þá nefnir hann það að sjálfsögðu. Hins vegar er fátítt að fólk á góðri og glaðri stund vilji ekki láta taka eða birta af sér mynd!

Sendið ábendingar um myndverðan mannfagnað í netpósti til Bæjarins besta eða hringið í síma 456 4560.


Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins

28.01 2011 – Mikið fjör var á Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík sem haldið var á Hótel Nordica á föstudagskvöld. „Þetta heppnaðist alveg stórkostlega. Reyndar voru færri en oft áður þar sem ekki var flogið frá Ísafirði, svo þeir sem ætluðu að koma að vestan komust ekki, og svo hefur það nú ...
Meira

Sjötugsafmæli HG fagnað

28.01 2011 – Mörg hundruð manns fögnuðu sjötíu ára starfsafmæli Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. um helgina. Starfsfólki, viðskiptavinum og velunnurum félagsins var boðið til hófs í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á föstudag og opið hús var hjá HG í Hnífsdal á laugardag. „Það komu fleiri hundruð manns í afmælishófið í Edinborgarhúsinu og á ...
Meira

Þorrablót Bolvíkinga

22.01 2011 – Um 200 manns sátu þorrablótið í Bolungarvík sem haldið var í 66. sinn á laugardag. „Blótið heppnaðist mjög vel þótt allt hefði reyndar farið úrskeiðis sem gat það en allt gekk upp á endanum með góðra manna hjálp og allt er gott sem endar vel,“ segir Þóra Hansdóttir, ...
Meira

Konukvöld karlakórsins Ernis

15.01 2011 – Karlakórinn Ernir hélt árvisst konukvöld í Guðmundarbúð á laugardagskvöld. „Við höfum haldið svona konukvöld í nokkur ár og það er alltaf rosalega gaman. Þetta er nokkurs konar uppskeruhátíð þar sem við komum saman, gerum okkur glaðan dag og höfum konurnar með og heiðrum vini og vandamenn,“ segir Sigmundur ...
Meira

Bolungarvíkurgöng opnuð 2

25.09 2010 – Mikið var um dýrðir er jarðgöngin milli Hnífsdals og Bolungarvíkur voru formlega tekin í notkun. Sérstök hátíðardagskrá hófst um morguninn með því að minnisvarði um ástvini sem farist hafa af slysförum var afhjúpaður við Skarfasker í Hnífsdal. Þá gafst fólki færi á að hlaupa í gegnum göngin. Síðan ...
Meira

Bolungarvíkurgöng opnuð 1

25.09 2010 – Mikið var um dýrðir er jarðgöngin milli Hnífsdals og Bolungarvíkur voru formlega tekin í notkun. Sérstök hátíðardagskrá hófst um morguninn með því að minnisvarði um ástvini sem farist hafa af slysförum var afhjúpaður við Skarfasker í Hnífsdal. Þá gafst fólki færi á að hlaupa í gegnum göngin. Síðan ...
Meira

Sjötta Mýrarboltamótið

31.07 2010 – Þrjátíu og fimm lið tóku þátt eða um 400 manns tóku þátt í sjötta Evrópumótinu í Mýrarbolta sem fram fór í Tungudal um verslunarmannahelgina. Almenn ánægja var með mótið. Aðskilnaðarsamtök Vestfjarða urðu Evrópumeistarar karla og Angels and Demons sigruðu í kvennadeildinni. Fjöldinn allur af áhorfendum lagði leið sína ...
Meira

Sparisjóðsmótið í Bolungarvík

24.07 2010 – Um 200 keppendur tóku þátt í á árlegu Sparisjóðsmóti Ungmennafélags Bolungarvíkur sem haldið var í blíðskaparveðri í Bolungarvík 24. júlí. Mótið er einn stærsti viðburður ársins hjá ungu knattspyrnufólki á norðanverðum Vestfjörðum. Auk Bolvíkinga voru einnig keppendur frá Ísafirði, Súðavík, Patreksfirði og Suðureyri. Keppendur voru í 5.-8. flokki ...
Meira

Stóra Púkamótið 2010

17.07 2010 – Mikil ánægja var með Stóra Púkamótið sem haldið var á Ísafirði í sjötta sinn dagana 16.-17. júlí. 67 púkar mættu til leiks á Torfnesi og skipuðu sex lið. Það voru svo Hlíðarvegspúkarnir sem fóru með sigur af hólmi. Í ár var bryddað upp á þeirri nýjung að innleitt ...
Meira

Húsfyllir á Hlífarsamsætinu

07.03 2010 – Húsfyllir var á Hlífarsamsætinu sem haldið var í Edinborgarhúsinu á Ísafirði sunnudaginn 7. mars. Kvenfélagið Hlíf stendur árlega fyrir samsætinu en dagskráin í ár var veglegri en venja er þar sem jafnframt var fagnað aldarafmæli kvenfélagsins. Meðal annars hélt sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur á Ísafirði, hugvekju og fram ...
Meira

Gunnlaugur bóksali áttræður

27.02 2010 – Vinir og vandamenn komu saman og fögnuðu áttræðisafmæli Gunnlaugs Jónassonar í Hömrum á laugardag. Gunnlaugur er þekktastur sem Gulli í Bókhlöðunni þar sem hann hefur starfað nærri alla sína ævi en hann lét af störfum í haust. Í veislunni heiðruðu félagar Gunnlaugs í Sunnukórnum hann en þar hefur ...
Meira

Mikið fjör á þorrablóti í Holti

20.02 2010 – Hið árlega þorrablót í Holti í Önundarfirði var haldið í 55. skipti laugardaginn 20. febrúar en það eru íbúar í dreifbýli í Önundarfirði sem sjá um framkvæmd blótsins, fjögur til fimm heimili í hvert sinn. Aðsóknarmet var á blótið í ár en samt tókst að koma ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli