Svipmyndir

Látið vita

Látið vita af mannfagnaði
eða sendið inn myndir

 Lesendur BB-vefjarins eru hvattir til að láta vita af myndvænum fagnaði af hvaða tagi sem er, svo sem afmælisveislum, árshátíðum og brúðkaupum, gæsagildum og steggjastandi, lautarferðum, götugleði og þorrablótum. Þá er ekki að vita nema ljósmyndari komi og taki myndasyrpu til birtingar hér á vefnum.

Einnig er gott og þakkarvert að fá sendar myndasyrpur frá slíkum viðburðum en þá verða myndirnar að vera mjög góðar og skýrar. Hafið samband varðandi stafrænar myndir, stærð þeirra og sendingu, þannig að tryggt sé að hægt verði að nota þær. Helst verða líka að fylgja nöfn þeirra sem eru á myndunum og vitneskja um samþykki þeirra fyrir birtingu.

Það má fólk líka vita, að þegar ljósmyndari Bæjarins besta er við störf í mannfagnaði, þá má allt eins búast við birtingu. Ef vera kynni að einhver vildi ekki að mynd af honum birtist, þá nefnir hann það að sjálfsögðu. Hins vegar er fátítt að fólk á góðri og glaðri stund vilji ekki láta taka eða birta af sér mynd!

Sendið ábendingar um myndverðan mannfagnað í netpósti til Bæjarins besta eða hringið í síma 456 4560.


Dýrafjarðardagar II

Sumarhátíðin Dýrafjarðardagar var haldin með pompi og prakt um fyrstu helgi júlímánaðar. Þunginn í dagskránni var á laugardag og sunnudag en boðið var upp á margvíslega afþreyingu, m.a. skemmtisiglingar, sjóstangaveiði, hestaleigu, marhnútaveiði, hoppikastala og gönguferð um söguslóðir Gísla Súrssonar, svo fátt eitt sé nefnt. Á laugardagskvöld var svo haldin strandveisla á ...
Meira

Dýrafjarðardagar I

Óhætt er að segja að góður rómur hafi verið gerður að sumarhátíðinni Dýrafjarðardögum sem haldin var um fyrstu helgina í júlí. Fjölbreytt dagskrá var í boði og hófst hátíðin með setningu sem Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiddi í félagsheimilinu á Þingeyri og síðan voru haldnir tónleikar í tilefni útkomu geisladisks Þrastar ...
Meira

Guðjón Arnar sextugur

Guðjón Arnar Kristjánsson, alþingismaður, varð sextugur mánudaginn 5. júlí sl. en helgina á undan hélt hann afmælisfagnað við sumarhús sitt í Þernuvík í Mjóafirði. Fjölmenni lagði leið sína í gleðskapinn á laugardag og samfagnaði þessum fyrrum aflaskipstjóra og núverandi þingmanni og formanni Frjálslynda flokksins. Gestir komu víða að af landinu, bæði ...
Meira

Karl Ásgeirsson fertugur

Karl Ásgeirsson, matreiðslumeistari hjá SKG-veitingum á Hótel Ísafirði, hélt upp á fertugsafmæli sitt með glæsibrag í húsi Oddfellowa á Ísafirði á föstudagskvöld. Eins og hans er vísa var boðið upp á veglegar veitingar sem samanstóðu í bland af því nýjasta frá útlöndum og ævafornum rammíslenskum uppskriftum. Veislustjóri var enginn annar en ...
Meira

Saltfiskkrásir og ljúfir tónar

Fyrsta saltfiskveisla sumarsins hjá Byggðasafni Vestfjarða var haldin í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á laugardagskvöld. Sú venja hefur skapast að valinkunnar alþýðukokkar ríði á vaðið og síðan taki atvinnumenn við eldamennskunni en stefnt er að þremur veislum til viðbótar í sumar. Í saltfiskveislunum er matreiddur sólþurrkaður úrvalsfiskur af reitunum í Neðstakaupstað. ...
Meira

Gestur sjósettur á ný

Vélbáturinn Gestur frá Vigur, sem smíðaður var í Bolungarvík árið 1906, fór í siglingu um Ísafjarðardjúp á laugardag að lokinni endurbyggingu. Siglt var frá Bolungarvík til Ísafjarðar en þaðan var haldið til Súðavíkur og síðan í Vigur þar sem efnt var til kaffisamsætis í tilefni tímamótanna. Gestur verður hafður til sýnis ...
Meira

Sólstöðuganga JC

Sjötta sólstöðuganga JC var farinn á Folafót í Ísafjarðardjúpi nokkrum dögum eftir sólstöður. Þátttakendur töldu á áttunda tuginn og fengu blíðskaparveður til göngunnar. Þegar göngumenn höfðu náð leiðarenda var tendraður varðeldur og sungið við gítarleik þar til haldið var aftur til Ísafjarðar. Lagt var af stað klukkan átta um kvöldið og ...
Meira

Götuveisla í Ólafstúni

Glatt var á hjalla þegar íbúar Ólafstúns á Flateyri efndu til götuveislu á laugardag 26. júní. Á milli sjötíu og áttatíu manns mættu í veisluna sem var haldinn í fimmta sinn og dregur að gesti úr öllu þorpinu. Íbúarnir grilluðu og var boðið upp á ýmis skemmtiatriði. Hljómsveitin Hraun frá Reykjavík ...
Meira

Dagný og Halldór fögnuðu tímamótum

Hjónin Dagný Þrastardóttir og Halldór Antonsson á Ísafirði samfögnuðu með fjölskyldu og vinum fyrir skemmstu en þau standa á tímamótum í þrennum skilningi. Dagný var að halda upp á fertugsafmæli sitt og Halldór fimmtugsafmæli en að auki eiga þau fimm ára brúðkaupsafmæli á árinu. Veislan var haldin í „klúbbhúsi Funny handshake ...
Meira

Bryggjudagar í Súðavík

Súðvíkingar voru ánægðir með hvernig til tókst á Bryggjudögum í Súðavík dagana 17.-19.júní. Eins og nafnið gefur til kynna endurspeglaðist nálægðin við hafið í skemmtidagskránni en m.a. var boðið upp á dorgveiðikeppni, siglingu að fiskeldiskvíunum á Álftafirði, siglingu út í Vigur og kvöldsiglingu og kappróðrakeppni. Þá var í fyrsta sinn efnt ...
Meira

17. júní á Ísafirði

Fjölmenni hélt í skrúðgöngu frá Silfurtorgi á Ísafirði að Eyrartúni þar sem þjóðhátíðardeginum var fagnað í glampandi sólskini. Fram eftir degi var boðið upp á skemmtiatriði af ýmsum toga og leiki fyrir yngri kynslóðina sem m.a. bauðst að fara á hestbak. Fjallkonan að þessu sinni var Margrét Magnúsdóttir, fegurðardrottning Vestfjarða. Um ...
Meira

Óli Palli í Vagninum

Útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, eða Óli Palli eins og hann er oftast nefndur, skemmti Flateyringum og nærsveitungum á Vagninum fyrir skemmstu. Óli Palli tróð upp með hljómsveit sem m.a. var skipuð vöskum piltum úr BMX og ætlaði allt um koll að keyra. Óhætt er að segja að Óli Palli hafi fengið ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli