Svipmyndir

Látið vita

Látið vita af mannfagnaði
eða sendið inn myndir

 Lesendur BB-vefjarins eru hvattir til að láta vita af myndvænum fagnaði af hvaða tagi sem er, svo sem afmælisveislum, árshátíðum og brúðkaupum, gæsagildum og steggjastandi, lautarferðum, götugleði og þorrablótum. Þá er ekki að vita nema ljósmyndari komi og taki myndasyrpu til birtingar hér á vefnum.

Einnig er gott og þakkarvert að fá sendar myndasyrpur frá slíkum viðburðum en þá verða myndirnar að vera mjög góðar og skýrar. Hafið samband varðandi stafrænar myndir, stærð þeirra og sendingu, þannig að tryggt sé að hægt verði að nota þær. Helst verða líka að fylgja nöfn þeirra sem eru á myndunum og vitneskja um samþykki þeirra fyrir birtingu.

Það má fólk líka vita, að þegar ljósmyndari Bæjarins besta er við störf í mannfagnaði, þá má allt eins búast við birtingu. Ef vera kynni að einhver vildi ekki að mynd af honum birtist, þá nefnir hann það að sjálfsögðu. Hins vegar er fátítt að fólk á góðri og glaðri stund vilji ekki láta taka eða birta af sér mynd!

Sendið ábendingar um myndverðan mannfagnað í netpósti til Bæjarins besta eða hringið í síma 456 4560.


Þorrablót Hnífsdælinga

Um 190 manns sóttu árlegt þorrablót Hnífsdælinga sem fór fram í félagsheimilinu í Hnífsdal laugardagskvöldið 5. febrúar sl. „Þetta heppnaðist mjög vel og var mjög gaman en alltaf er slatti af brottfluttum Hnífsdælingum sem koma á þorrablótið“, segir Margrét Skúladóttir hjá kvenfélaginu Hvöt. Kvenfélagið hélt blótið og að venju rennur ...
Meira

Þorrablót Þingeyringa

Slysavarnadeildin Vörn hélt árlegt þorrablót Þingeyringa í félagsheimili staðarins á laugardag. „Þetta heppnaðist mjög vel og ég held að allir hafi skemmt sér vel“, segir Steinn Ólafsson, einn skemmtinefndarmanna. Um 100 manns sóttu blótið sem fór fram með hefðbundnu sniði, gestir snæddu mat úr trogum og boðið var upp á heimatilbúin ...
Meira

Sunnukórsballið 2005

Um 160 manns sóttu hinn árlega dansleik Sunnukórsins sem var haldinn í sal frímúrara á Ísafirði laugardagskvöldið 29. janúar. „Ballið var mjög vel heppnað þrátt fyrir ýmsar uppákomur og heyrði ég ekki annað á fólki en að það væri mjög ánægt með þetta", segir Páll Gunnar Loftsson, annar tveggja veislustjóra kvöldsins ...
Meira

Þorrablót Bolvíkinga

Fjölmenni var samankomið yfir trogunum á þorrablóti Bolvíkinga sem var haldið í Víkurbæ laugardagskvöldið 22. janúar sl. Hefð er fyrir því að bolvískar konur bjóði á þorrablót og er skilyrði að þær mæti í íslenskum þjóðbúningi. Karlmönnum er gert að vera í svörtum fötum og margir klæðast íslensku hátíðarbúningunum við þetta ...
Meira

Nýársfagnaður SKG

Hinn árlegi nýársfagnaður SKG-veitinga á Ísafirði fór fram að kvöldi nýársdags. Að vanda tjölduðu meistarakokkar fyrirtækisins öllu besta til í mat og drykk og tókst afar vel að sögn gesta. Styrk veislustjórn var í höndum Sturla Páls Sturlusonar frá Suðureyri. Að borðhaldi loknu var stiginn dans fram eftir nóttu. Meðfylgjandi myndir ...
Meira

Óveður á Vestfjörðum

Veður hefur verið leiðinlegt vestra og víðar á landinu undanfarna daga. Raunar mætti hér auðveldlega fastar að orði kveða. Fjöldi húsa í Bolungarvík, í Hnífsdal, á Patreksfirði og víðar á Vestfjörðum hafa verið rýmd vegna snjóflóðahættu. Þá hafa þjóðvegir í fjórðungnum verið meira og minna ófærir og sums staðar verið illfært ...
Meira

Pálína Vagnsdóttir fertug

Bolvíkingurinn Pálína Vagnsdóttir hélt upp á fertugsafmæli sitt í Víkurbæ föstudaginn 26. nóvember. Í veisluna mættu vel á annað hundrað manns. „Ég á marga vini og stóra fjölskyldu og þetta var ógleymanlegt kvöld, einstaklega gott í minningasafnið“, segir Pálína. „Við átum, drukkum og vorum glöð. Ég söng lög með syni ...
Meira

Villibráðakvöld og 20 ára afmæli BB

Laugardagskvöldið 13. nóvember var haldið villibráðakvöld á Hótel Ísafirði. Á sama stað á sama tíma héldu starfsmenn H-Prent, sem gefur út Bæjarins besta, og aðrir sem að blaðinu koma upp á 20 ára afmæli þess. Meðfylgjandi myndir úr veislunni tóku ljósmyndararnir Halldór Sveinbjörnsson og Þorsteinn J. Tómasson. ...
Meira

Hnífsdælingahátíð á Seltjarnarnesi

Brottfluttir Hnífsdælingar komu saman í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi á dögunum, borðuðu, fylgdust með skemmtiatriðum og dönsuðu fram á rauða nótt. Að sögn Róberts Halldórssonar veislustjóra gekk skemmtunin vonum framar vel og mættu um 120 manns í mat og ívið fleiri á ball. „Valgeir Guðjónsson fór hamförum, spilaði tónlist og sagði gamansögur ...
Meira

Kvenfélagið Ársól í Búdapest

Kvenfélagið Ársól á Suðureyri fór ásamt mökum til Búdapest í Ungverjalandi helgina 29. október til 1. nóvember sl. „Mjög skemmtileg ferð og mikil menningarferð. Ekki var gert mikið úr verslunarferðum heldur fórum við í Dónárdal, sigldum á Dóná, skoðuðum mannlífið og fórum út að borða saman öll kvöldin“, segir Bryndís Birgisdóttir ...
Meira

Konukvöld á Vagninum

Konukvöld var haldið á Vagninum á Flateyri laugardaginn 6. nóvember. „Kvöldið heppnaðist alveg frábærlega og var mjög skemmtilegt. Það myndast alltaf öðruvísi stemning á konukvöldum“, segir Ásdís Jónsdóttir hjá Vagninum. Meðal annars var boðið upp á undirfatasýningu fyrir bæði konur og karla, kynningu á hjálpartækjum ástarlífsins og breytt útlit auk kvöldverðar. ...
Meira

Villibráðakvöld SKG-veitinga

Villibráðakvöld SKG-veitinga var haldið á Hótel Ísafirði laugardaginn 30. október. Að venju kenndi þar ýmissa grasa úr villtri náttúru Íslands. Má þar nefna hreindýr, gæs, svartfugl, skarf, önd, lax, sjóbirting, sel og hrefnu svo eitthvað sé nefnt. Nú var annað árið í röð boðið upp á nýveidda hrefnu en um árabil ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli