Svipmyndir

Látið vita

Látið vita af mannfagnaði
eða sendið inn myndir

 Lesendur BB-vefjarins eru hvattir til að láta vita af myndvænum fagnaði af hvaða tagi sem er, svo sem afmælisveislum, árshátíðum og brúðkaupum, gæsagildum og steggjastandi, lautarferðum, götugleði og þorrablótum. Þá er ekki að vita nema ljósmyndari komi og taki myndasyrpu til birtingar hér á vefnum.

Einnig er gott og þakkarvert að fá sendar myndasyrpur frá slíkum viðburðum en þá verða myndirnar að vera mjög góðar og skýrar. Hafið samband varðandi stafrænar myndir, stærð þeirra og sendingu, þannig að tryggt sé að hægt verði að nota þær. Helst verða líka að fylgja nöfn þeirra sem eru á myndunum og vitneskja um samþykki þeirra fyrir birtingu.

Það má fólk líka vita, að þegar ljósmyndari Bæjarins besta er við störf í mannfagnaði, þá má allt eins búast við birtingu. Ef vera kynni að einhver vildi ekki að mynd af honum birtist, þá nefnir hann það að sjálfsögðu. Hins vegar er fátítt að fólk á góðri og glaðri stund vilji ekki láta taka eða birta af sér mynd!

Sendið ábendingar um myndverðan mannfagnað í netpósti til Bæjarins besta eða hringið í síma 456 4560.


Árshátíð Menntaskólans á Ísafirði

Árshátíð Menntaskólans á Ísafirði var haldin í sal frímúrara á föstudag. „Þetta gekk voðalega vel. Að vísu var ekki flogið svo veislustjórinn Sigurjón Kjartansson komst ekki en Ingi Þór Ágústsson hljóp í skarðið fyrir hann og gerði það mjög vel“, segir Brynja Huld Óskarsdóttir hjá Nemendafélagi MÍ. Um 150 nemendur og ...
Meira

Þorrablót Grunnvíkinga

Þorrablót Grunnvíkinga var haldið í félagsheimilinu í Hnífsdal sl. laugardagskvöld. Að sögn Katrínar Gunnarsdóttur sem var í skemmtinefnd gekk blótið vel. „Það var rosalega gaman og mikið fjör. Það mættu um 160 manns og var setið við öll borð í félagsheimilinu. Svo bættist við á ballinu þannig að þetta hafa verið ...
Meira

Bolvíkingar syðra blóta þorra

Á þriðja hundrað manns sóttu þorrablót Bolvíkingafélagsins í Reykjavík og nágrenni sem haldið var laugardaginn 4. febrúar. „Þetta var rosalega skemmtilegt og fjöldi gesta eykst á hverju ári. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá þarna bæði unga og aldna, brottflutta Bolvíkinga og einnig marga sem enn eru búsettir í Bolungarvík sem ...
Meira

Fjölmennur Stútungur

Uppselt var á Stútung á Flateyri sem haldinn var með glæsibrag í 72. sinn laugardagskvöldið 4. febrúar. Kvöldið hófst með borðhaldi og var boðið upp á hefðbundinn þorramat og auk þess reiddu matreiðslumenn SKG-veitinga fram aðrar kræsingar. Þegar allir voru orðnir mettir hófust skemmtiatriðin. Þá var sungið, leikið og sprellað, og ...
Meira

Þorrablót Hnífsdælinga

Á annað hundrað manns sóttu þorrablót Hnífsdælinga sem var haldið í félagsheimilinu í Hnífsdal laugardagskvöldið 4. febrúar. „Blótið gekk alveg frábærlega vel og þetta var dúndur gaman“, segir Rannveig Pálsdóttir sem var í skemmtinefnd. Gestir komu með trog að heiman og tóku vel til matar síns. Boðið var upp á heimatilbúin ...
Meira

Súgfirðingar blótuðu þorra

Súgfirðingar blótuðu þorra í nýja íþróttahúsinu á Suðureyri á laugardag. Um 150 gestir mættu. „Blótið gekk bara mjög vel. Þetta var í frumraun í að halda svona hátíð í íþróttahúsinu og það gekk bara mjög vel. Það var mun plássmeira en í félagsheimilinu sem kom sér vel þegar átti að dansa“, ...
Meira

Vel heppnað Sunnukórsball

Mikið fjör var á árlegum dansleik Sunnukórsins á Ísafirði sem haldinn var í félagsheimilinu í Hnífsdal á laugardag að sögn Jens Kristmannssonar formanns skemmtinefndar. „Þetta var stórfínt ball og allt gekk alveg ágætlega. Mæting var nokkuð góð eða svipuð og undanfarin ár“, segir Jens. Dansleikurinn fór fram með glæsibrag eins og ...
Meira

Þorrablót Bolvíkinga

Þorrablót Bolvíkinga var haldið með glæsibrag síðastliðið laugardagskvöld. „Það var rífandi stemning eins og vanalega. Annállinn sló í gegn, í honum er enginn óhultur og nú er svo komið að það þykir heiður ef á mann er minnst í honum“, sagði Soffía Vagndóttir. „Það var mikið sungið og forsöngvari í salnum ...
Meira

Nýársfagnaður SKG veitinga

Nýársfagnaður SKG veitinga var haldinn á Hótel Ísafirði á laugardagskvöld. Á sjöunda tug gesta gæddu sér á önd, kengúrukjöti og fleiru sem Bolvíkingurinn Halldór Karl Valsson, matreiðslumeistari á Hótel Holti og Norðurlandameistari í matreiðslu árið 2004 sá um að elda. „Maturinn var mjög góður og kengúran kom skemmtilega á óvart, mjög ...
Meira

Jólahlaðborð Klofnings

Mikil jólastemmning ríkti er fiskvinnslufyrirtækið Klofningur ehf. á Suðureyri bauð starfsmönnum sínum og stærstu birgjum til jólahlaðborðs í Bjarnarborg, húsi Verkalýðsfélags Súgandafjarðar laugardaginn 17. desember. Um 55 manns mættu til fagnaðarins. Verslunin Rómarborg sá um skipulagninguna og SKG veitingar um matseldina og fengu kokkar fyrirtækisins mikið lof matargesta. Fólkið undi sér ...
Meira

Hundrað ára afmæli iðnmenntunar

Hundrað ára afmæli iðnmenntunar á Ísafirði var fagnað í Menntaskólanum á Ísafirði föstudaginn 2. desember. Til hátíðarinnar mættu meðal annarra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, iðnaðarmenn og starfsfólk skólans. Hátíðardagskráin var tvískipt. Fyrri hluti hennar fór fram á sal skólans en sá síðari í verkmenntahúsi MÍ. Meðfylgjandi myndir ...
Meira

Kveikt á jólatré Ísfirðinga

Ljósin á jólatré Ísfirðinga á Silfurtorgi, sem er gjöf frá Hróarskeldu, vinabæ Ísafjarðar í Danmörku, voru tendruð laugardaginn 3. desember að viðstöddu fjölmenni. Fremur kalt var í veðri og nokkur vindur og létu Ísfirðingar það ekki hafa áhrif á mætinguna. Samtímis var haldin hin árlega jólatorgsala Styrktarsjóðs Tónlistarskóla Ísafjarðar sem þótti ...
Meira


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli