Stakkur

Stakkur 20. tbl. 2013 | 23.05.13 | 09:49 Ný ríkisstjórn

Þegar þessi orð birtast mun væntanlega verða ljóst að ný ríkisstjórn tekur við stjórnartaumum á Íslandi. Fyrir henni fer ungur forsætisráðherra Framsóknarflokks. Hugmyndir hans um það hvernig nýta megi fé erlendra eigenda íslensku bankanna hafa vakið athygli. Ljóst má þó vera að kálið sé ekki sopið þó í ausuna sé komið. ...
Meira

Stakkur 19. tbl. 2013 | 16.05.13 | 09:31Vöfflur með rjóma

Enn hækkar sól á lofti og ungir stjórnmálamenn, forystumenn í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, hafa staðið í bakstri að undanförnu. Vöfflur voru það og því líklegt að ríkisstjórn þeirra, sem margt bendir til að verði að veruleika verði kennd við vöfflurnar. Margir vilja þó kenna hana við Krónuna þar sem hráefnið mun ...
Meira


Stakkur 18. tbl. 2013 | 08.05.13 | 09:27 Innanlandsflug í Reykjavík

Lífið heldur áfram. Venjulegt fólk tekst á við daglega tilveru, hækkandi skatta, vöruverð og afborganir húsnæðislána. Hugtakið almenningur er oft óljóst bæði stjórnmálmönnum og fjölmiðlungum, sem gagnstætt hinum fyrri standa sig stundum vel, oft illa og afar illa þegar verst lætur, þótt þeir reyni að telja okkur trú um dugnað sinn, ...
Meira

Stakkur 17. tbl. 2013 | 02.05.13 | 09:26 Sumarið er okkar

Það er mikill léttir að vera laus undan kosningum. Sannast sagna er fremur leiðingjarnt að heyra annars ágætasta fólk lofa endalaust upp í ermina á sér. Svo vel færi ættu stjórnmálamenn að ganga í stutterma skyrtum, svo ekki sé pláss fyrir innistæðulaus loforð í ermum þeirra. Nú tekur við tímabil aðgerðarleysis, ...
Meira


Stakkur 16. tbl. 2013 | 24.04.13 | 09:20 Vorkosningar

Kosningarnar á laugardaginn gætu orðið þær mikilvægustu um langa hríð. Ísland þarf að rísa. Enn streymir loforðaflóðið fram af miklum þunga, líkt og jökulá í mikilli sólbráð eða öllu heldur í vetrarleysingu. Vonandi stíflast ekki flóðið og safnar upp stöðuvatni efndalausra loforða. Stjórnmálaforingjarnir hafa færst í aukana og eðlilegt er að ...
Meira

Stakkur 15. tbl. 2013 | 18.04.13 | 08:56 Pólitísk óvissa og kjarkleysi

Eftir rúma viku kjósa kosningabærir Íslendingar til Alþingis. Fróðlegt hefur verið að fylgjast með kosningabaráttunni. Mörgu er lofað líkt og næg séu efnin, sem þó er ekki raunin. Lengst gengur Framsóknarflokkurinn enda hefur hann verið lengst utan ríkisstjórnar af þeim fjórum flokkum sem fortíð hafa. Svo virðist sem sá góði flokkur ...
Meira


Stakkur 14. tbl. 2013 | 11.04.13 | 08:51 Endalaus og efndalaus loforð

Kosningar eru framundan. Óhætt er að segja að úrslit síendurtekinnar skoðanakönnunar hinna ýmsu fyrirtækja og stofnana skapi spennu. Allir flokkar eru að verða að smáflokkum, nema Framsóknarflokkurinn. Hann vex stöðugt og stefnir hratt á það mark að ná hreinum meirihluta alþingismanna eftir hálfan mánuð. Hann ríkti frá 1927 til 1932 með ...
Meira

Stakkur 13. tbl. 2013 | 04.04.13 | 09:31 Aldrei fór ég suður

Páskar eru að baki og vorið framundan, einn besti tími ársins. Því fylgja vonir með hækkandi sól, vonir um gott og gefandi sumar. Um Páska er haldin tónlistarhátíðin ,,aldrei fór ég suður“. Hún hefur unnið sér sess og er órjúfanlega tengd Ísafirði og Vestfjörðum. Það fer að teljast öllum merkari tónlistarmönnum ...
Meira


Stakkur 12. tbl. 2013 | 28.03.13 | 09:08 Fjölmiðlun og páskar

Páskar eru mesta trúarhátíð kristinna manna á Íslandi, sé gengið út frá því að meirihluti Íslendinga teljist kristinn. Margt hefur verið sagt um trúarlíf og einkum trúarbrögð á Íslandi síðustu ár. Af fjölmiðlum má ráða að trúarbrögð séu ekki verðugt umfjöllunarefni. Sumir telja reyndar að ríkisfjölmiðillinn hafi nánast horn í ...
Meira

Stakkur 11. tbl. 2013 | 21.03.13 | 09:57 Framboð og eftirspurn

Nóg er framboðið af þingmannsefnum. En hvað bjóða þau fram, nýjar lausnir? Allt er fremur óljóst og verður enn þokukenndara þegar ríkisstjórn verður til. Tveir tugir framboðslista af öllum sortum er mikið. En það er ekki hægt að velja líkt og þegar fyrirmyndar húsmóðirin býður gestum sínum að fá sér af ...
Meira


Stakkur 10. tbl. 2013 | 14.03.13 | 09:34 Allra stétta – allar stéttir

Kosningar nálgast óðfluga. Því fylgir mikil spenna í samfélaginu. Margir telja sig til kallaða á Alþingi næsta kjörtímabil. Vitað er að eingöngu 63 verða valdir til setu. En svo margir vilja sæti að kjörseðillinn 27. apríl næstkomandi verður svo stór að vandræði verða að handfjatla hann. Það er ótvírætt fagnaðarefni hve ...
Meira

Stakkur 9. tbl. 2013 | 07.03.13 | 09:08 Alþingiskosningar verði til gagns

Lýðræðið kann að vera tvíbent, einkum eftir því hvern skilning kjósendur leggja í orðið sjálft og hvernig þeir takast á við það að nýta sér kosningaréttinn. Stjórn á grunni lýðræðis er okkur Vesturlandabúum að skapi. Við höfum byggt á þessu stjórnarformi um langa hríð, eina til eina og hálfa öld rúmlega ...
Meira


Stakkur 8. tbl. 2013 | 28.02.13 | 09:38 Ungmennafélagið Ísland

Fjórflokkurinn hefur yngt upp hjá sér. Rétt er að telja Vinstri græna einskonar arftaka Alþýðubandalagsins sáluga og Samfylkingu eins konar krataflokk þótt margir sakni þeirra góðu gilda sem Alþýðuflokkurinn stóð fyrir. Nýtt fólk er komið í valdastóla þeirra tveggja síðast nefndu en áður höfðu Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur yngt upp. Vonandi verður ...
Meira

Stakkur 7. tbl. 2013 | 21.02.13 | 09:06 Fiskveiðstjórn, ferðaþjónusta og taumlaus skattur

Hver eru tækifæri Vestfirðinga til framtíðarbúsetu? Íbúar Vestfjarða eru nú um 7000 og hefur fækkað um nálægt 2500 á síðustu 30 árum. Sé leitað skýringa verður mörgum efst í huga kvótakerfið, stjórnkerfi fiskveiða, sem tekið var upp fyrir tæpum 30 árum. Vissulega kann það að vera rétt. En þegar breyta skal ...
Meira


Stakkur 6. tbl. 2013 | 14.02.13 | 09:53 ,,Jólasveinar“ í gjafaferð

Allt er á leiðinni niður á við á Íslandi, norður og niður hefði einhvern tíma verið sagt. Nú er svo komið að boðberi norrænnar velferðarstjórnar er að ná árangri. Þeir eru fluttir úr landi sem vilja norræna velferð sér til handa. Marg tuggðar tölur um minnkandi atvinnuleysi eru falsaðar samanber grein ...
Meira

Stakkur 5. tbl. 2013 | 07.02.13 | 09:50 JJ Evró sveitin 0 stig!

Undanfarin fjögur ár hafa Íslendingar haft eins konar Evróvision í gangi. Ríkisstjórn Jóhanns og Jóhönnu hefur lagt sig fram um að Ísland lagi sig að Evrópusambandinu í samræmi við aðildarumsókn, sem þau samþykktu bæði ásamt flokkssystkinum sínum í Vinstri grænum og Samfylkingu. Lengi var okkur kjósendum talin trú um að um ...
Meira


Stakkur 4. tbl. 2013 | 31.01.13 | 09:52 Vestfirðir settir í annan flokk

Prófkjör og undirbúningur alþingiskosninga hinn 27. apríl í vor eru að taka á sig mynd. Í Norðvesturkjördæmi hafa mál skýrst. Jón Bjarnason fyrrum ráðherra hefur yfirgefið þingflokk Vinstri grænna og segir VG hafa svikið loforð, kjósendur sína og reyndar sjálfa sig undanfarin ár. Þeir sem kusu VG árið 2009 til þess ...
Meira

Stakkur 3. tbl. 2013 | 24.01.13 | 09:42 Eldgos sameinar þjóðina

Hinn 23. janúar 1973 er skráður með skýrum hætti í Íslandssöguna líkt og gildir um margar aðrar náttúruhamfarir. Þá um nóttina hófst eldgos í Heimaey sem stóð til 3. júlí um sumarið. Hið merkasta var að íbúum tókst að flýja Heimaey á skömmum tíma. Slys urðu vart á fólki. Um fimm ...
Meira


Stakkur 2. tbl. 2013 | 17.01.13 | 09:57 Skattar og efnahagur fólks og þjóðar

Bjartsýni á nýbyrjuðu ári er ótvíræður kostur þegar lagt er upp í ársgönguna og enn lifa 349 dagar sem við getum nýtt okkur til þess að bæta kjör okkar og þjóðarinnar. Vonandi verður það hægt þrátt fyrir stjórnmálamenn. Þeir virðast oft lokast af í sínum eigin heimi. Maður sem þarf ekki ...
Meira

Stakkur 1. tbl. 2013 | 10.01.13 | 09:10 Nýtt ár og nýjar vonir

Árið 2013 er gengið í garð og þá er spurt hvað færir það okkur? Svarið við þessari spurningu reynist engan veginn auðvelt. Álíka hefur verið spurt um hver áramót og undir liggur spenna og forvitni. Það skýrir vinsældir alls kyns spádóma um komandi ár um hver áramót. Völvur bjarga engu, hvorki ...
Meira


Stakkur 51. tbl. 2012 | 20.12.12 | 09:39 Hátíð ljóss og friðar

Senn rennur upp ein stærsta hátíð kristinna manna. Jólin eru flestum fagnaðarefni og veita okkur kærkomið tækifæri til þess að verja gæðastundum með fjölskyldu og vinum. Ríkar hefðir hafa skapast um jólahald bæði hjá þjóðinni og einstökum fjölskyldum. Um þessar mundir sækja ýmsir að kristni og trú á Íslandi. Engu að ...
Meira

Stakkur 50. tbl. 2012 | 13.12.12 | 09:29 Skattaskefill til byggða

Jólin nálgast óðum. Aðeins 11 dagar eru til jóla og margir farnir að huga að þeim, sumir meira að segja löngu byrjaðir. Jólin er mörgum, vonandi flestum, efni tilhlökkunar, skammdegið hörfar og kristnum eru þau kærkomin tímamót í árinu þegar minnst er fæðingar Jesú Krists. Boðskapur kristinna um jól er fögnuður ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli