Pistlar

Einar Kristinn Guðfinnsson | 05.03.10 | 14:55 Kjósum og segjum nei

Mynd með frétt Þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardag er afar mikilvæg. Þar gefst okkur kostur á að segja álit okkar á samningi sem kallar yfir okkur ólýsanlegar efnahagsbyrðar. Þessi atkvæðagreiðsla er einnig eitt mikilvægasta vopnið okkar í erfiðum samningum við Hollendinga og Breta sem hafa ekki skirrst við að beita okkur ofbeldi og ofríki. Þess vegna ...
Meira


Ólína Þorvarðardóttir | 01.03.10 | 10:49 Baráttan um þjóðarauðlindina

Mynd með frétt Gunnar Þórðarson sendi mér tóninn með grein sem hann birti hér á vefsíðunni í gær, þar sem hann jós úr skálum speki sinnar. Tilefnið sem hann fann sér að þessu sinni var stutt viðtal sem Rúv átti við mig fyrir skömmu um skýrslu framkvæmdastjórnar ESB. Gunnar lætur sér ekki nægja ...
Meira

Benedikt Bjarnason | 26.02.10 | 17:00 Opin stjórnsýsla og skýr framtíðarsýn

Mynd með frétt Ég gef kost á mér í prófkjör Í-listans, sem fram fer 27. febrúar næstkomandi, sækist ég eftir 3 til 4 sæti á listanum. Ég gef kost á mér í þessu prófkjöri því ég vil vinna að bættum hag Ísafjarðarbæjar. Ég gef kost á mér í til að standa vörð um atvinnumál, ...
Meira


Arna Lára Jónsdóttir | 26.02.10 | 10:18 Reynslunni ríkari

Mynd með frétt Síðustu fjögur ár sem bæjarfulltrúi Í-listans hafa verið afar lærdómsrík. Í kosningabaráttunni fyrir fjórum lofaði hvert framboðið á fætur öðru glænýrri sundlaug með öllu tilheyrandi, leggja átti göngustíg út í Hnífsdal (sem vonandi verður gert í sumar), fara átti í miklar framkvæmdir á skíðasvæðinu, búið var að skipuleggja stúdentagarða á ...
Meira

Einar Guðfinnsson / Jón Gunnarsson | 25.02.10 | 15:06 Að kjósa ófrið þó friður sé í boði

Mynd með frétt Mikil, breið og almenn samstaða er nú orðin um það innan sjávarútvegsins, hjá Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins að fara þess á leit að frumvarp um stjórn fiskveiða sem nefnt hefur verið „skötuselsfrumvarpið“ verði ekki afgreitt frá Alþingi. Varla hefur í aðra tíð myndast svo mikil samstaða á meðal hagsmunasamtaka í ...
Meira


Arna Lára Jónsdóttir | 24.02.10 | 13:03 Ríkur vilji til verka

Mynd með frétt Það hefur varla farið framhjá neinum bæjarbúa að rekstur Ísafjarðarbæjar er þungur og svigrúm til framkvæmda lítið. Það verður því krefjandi fyrir næstu bæjarstjórn að takast á erfiða fjárhagsstöðu. Það er ekki hægt að skera endalaust niður þjónustuna heldur verðum við að leita allra leiða til að ...
Meira

Kristján Andri Guðjónsson | 23.02.10 | 10:22 Annt um að hér sé gott að lifa og starfa

Mynd með frétt Ágætu íbúar Ísafjarðarbæjar. Nú er í annað sinn efnt til framboðs til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar sameiginlega af Samfylkingu, Vinstri grænum og Frjálslyndum og óháðum. Þar sem núverandi samstarf hefur gengið afar vel, var ákveðið að halda áfram því góða starfi, með hagsmuni bæjarfélagsins og íbúanna að leiðarljósi. Ég og mín fjölskylda höfum ...
Meira


Lína Björg Tryggvadóttir | 22.02.10 | 16:32 „Fólksflótti“ af Vestfjörðum – Hvað veldur?

Mynd með frétt Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands þá hafa samtals 877 manns flust frá Vestfjörðum umfram aðflutta á síðustu 11 árum. Árið 2009 eru brottfluttir umfram aðflutta í Ísafjarðarbæ 93 einstaklingar. Þetta eru sláandi tölur sem hérna koma fram og vert að skoða hvað getur valdið þessum „flótta“.
Meira

Jóna Benediktsdóttir | 22.02.10 | 09:17 Hver á að hafa eftirlit með eftirlitinu?

Mynd með frétt Á síðasta fundi fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar var bókað um samræmda stærðfræðiprófið frá haustinu 2009. Bókunin var að frumkvæði fulltrúa kennara í nefndinni sem jafnframt er stærðfræðikennari á svæðinu. Málið hefur ekki vakið mikla athygli en er að mínu mati afar athyglisvert. Í bókuninni kom fram ,,að stærðfræðikennarar í Ísafjarðarbæ ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 18.02.10 | 11:35 Fyrningarleið útvegsmanna

Mynd með frétt Útvegsmannasamtök standa fyrir mikilli áróðursherferð um þessar mundir gegn fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Með þeim í þessum leiðangri eru stjórnarandstöðuflokkarnir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur. Þeir virðast álíta þetta mál kjörið til þess að þétta raðir stuðningsmanna sinna og safna fylgi að nýju eftir hrakfarir síðustu alþingiskosninga. Það ...
Meira

Gunnlaugur Sighvatsson | 16.02.10 | 13:20 Áróðursstríð alþingismanns

Mynd með frétt Orðræða alþingismannsins Ólínu Þorvarðardóttur, varaformanns sjávarútvegsnefndar Alþingis, í umræðu um fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnkerfi okkar Íslendinga hefur um margt verið undarleg. Í grein sinni „Villuflagg LÍÚ“ sem hún fékk birta í Morgunblaðinu og nokkrum netmiðlum í sínu kjördæmi nýlega eyðir hún (líkt og svo oft áður) öllu sínu púðri í ...
Meira


Kristinn H. Gunnarsson | 15.02.10 | 14:39 Eva Joly eykur ágreininginn

Mynd með frétt Eva Joly, þingmaður á Evrópuþinginu, er ráðgjafi sérstaks saksóknara í eftirmálum fjármálahrunsins. Nú vill hún verða ráðgjafi íslensku þjóðarinnar í Icesave málinu. Í Morgunblaðinu lýsir Eva Joly sínum ráðum. Hún telur að ríkið beri enga ábyrgð á Icesave innstæðunum. Þar er hún í andstöðu við álit Evrópusambandsins, allra 27 landa þess ...
Meira

Guðfinna M. Hreiðarsdóttir | 12.02.10 | 18:00 Reiðubúin til forystu

Mynd með frétt Laugardaginn 13. febrúar ákveða sjálfstæðismenn í Ísafjarðarbæ hverjir verða þeirra fulltrúar í bæjarstjórn á nýju kjörtímabili. Ég hef lýst mig reiðubúna til að leiða þann hóp sem fyrir valinu verður og gera mitt til að vinna að farsælli uppbyggingu bæjarfélagsins á komandi árum. Verkefnið sem ný bæjarstjórn stendur frammi fyrir er ...
Meira


Guðný Stefanía Stefánsdóttir | 12.02.10 | 13:28 Einstakt tækifæri til að hafa áhrif

Mynd með frétt Á morgun mun bæjarbúum gefast kostur á að velja úr hópi 10 frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ. Þarna fá íbúar Ísafjarðabæjar gott tækifæri til að hafa áhrif á niðurröðun lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Ég fluttist vestur árið 2002 ásamt eiginmanni mínum Jóni Hálfdáni Péturssyni, og réði mig til starfa ...
Meira

Kristín Háfldánsdóttir | 11.02.10 | 15:53 Bjartsýni á framtíðina

Mynd með frétt Bæjarfélag er ekkert annað en íbúarnir sem þar búa. Þeir koma sér saman um stjórn sameiginlegra mála til að hámarka lífsgæði sín. Það er einfaldlega hagkvæmt að koma sér saman um rekstur skóla, hafna, vatnsveitu o.s.frvs. Síðan kjósa íbúarnir sér fulltrúa til að stjórna þessum málum til fjögurra ára í senn. ...
Meira


Bjarni M. Jónsson | 11.02.10 | 09:49 Prófkjör 2010

Mynd með frétt Vestfirðingar eru þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga úrval af atorkusömum einstaklingum sem bjóða fram krafta sína til forustu á vettvangi sveitarstjórnarmála nú sem áður. Einn þessara einstaklinga er vinur minn Gísli H. Halldórsson en hann býður sig fram í fyrsta sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Ísafjarðarbæ. Gísla kynntist ég fyrir ...
Meira

Hlynur Kristjánsson | 10.02.10 | 09:26 Ísafjarðarbær fyrir alla

Mynd með frétt Ísafjarðarbær er margbrotið og skemmtilegt samfélag. Þau eru ekki mörg sveitarfélögin sem hafa uppá að bjóða búsetu í sveit, sjávarþorp og kaupstað. Það er ekki auðvelt að stýra bæjarfélagi af þeirri gerð og þarfirnar eru ólíkar. Ekki hafa allir skilning á þörfum annarra byggðarkjarna og er sú umræða oft óvægin og ...
Meira


Margrét Halldórsdóttir | 09.02.10 | 15:10 Erum við heppin?

Mynd með frétt Undanfarið hafa hljómað í útvarpinu auglýsingar frá Vá-Vest þar sem foreldrar eru minntir á hversu heppnir þeir eru að eiga unglinga og þeir hvattir til að vera með þeim og hugsa um velferð þeirra. Í kjölfarið var mér hugsað til þess hversu heppin við hér fyrir vestan erum því við eigum ...
Meira

Jakob Falur Garðarsson | 08.02.10 | 09:35 Gísla til forystu

Mynd með frétt Gísli Halldór Halldórsson, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, sækist eftir 1. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna sem fram fer n.k. laugardag. Ég hef þekkt Gísla Halldór frá barnæsku. Við erum jafnaldrar og æskuvinir, bekkjarfélagar og samstúdentar. Þess vegna veit ég með mikilli vissu hvaða mann Gísli Halldór hefur að geyma. Ég veit að hann ...
Meira


Ólafur Bjarni Halldórsson | 05.02.10 | 10:15 Steingrímur Hermannsson

Mynd með frétt „Hann fór með mig á alla vinnustaði, í alla beitingaskúra og um borð í alla báta. Hvert sem lifandi sálu var að finna. Þegar fólk leit upp frá vinnu sinni tók hann í öxl mér og sagði: Þessi maður hér er Steingrímur Hermannsson. Hann eigið þið að kjósa.“ Svo lýsir Steingrímur ...
Meira

Kristinn H. Gunnarsson | 03.02.10 | 14:33 Forseti Íslands kominn út í fúafen

Mynd með frétt Forseti Íslands hefur ratað í slíkt fúafen síðan um áramót að engin leið er fyrir hann fær til baka. Forsetaembættið er orðið óþekkjanlegt og engin ríkisstjórn, hvorki sú sem nú situr, né þær sem síðar munu koma, mun sætta sig það pólitíska athafnasvið sem Ólafur Ragnar Grímsson hefur afmarkað sér. Nú ...
Meira


Gísli Halldór Halldórsson | 01.02.10 | 10:36 Strandveiðar og sundrung meirihluta

Mynd með frétt Nokkuð veður var gert út af því í fjölmiðlum nú nýverið að meirihlutinn í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefði klofnað vegna ályktunar bæjarstjórnar um að efla beri strandveiðarnar. Ég var ásamt öðrum bæjarfulltrúum spurður að því hvort þetta þýddi að meirihlutasamstarfið væri í hættu. Slíkt er auðvitað fjarri lagi. Almennt hefur núverandi meirihluti ...
Meira

Sverrir Pétursson | 27.01.10 | 08:57 Mikilvægi markaðsstarfs í sjávarútvegi

Mynd með frétt Í allri framleiðslu er markaðsstarf sá þáttur sem er hvað oftast vanmetinn. Einu gildir hvort um ræðir landbúnað, áliðnað eða sjávarútveg. Í sjávarútvegi nútímans eru mikil tengsl á milli fiskimiða og markaðar. Sá sem stýrir veiðunum er yfirleitt í beinu sambandi við kaupendur, hvort heldur þeir eru hér á landi, í ...
Meira



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli