Sigurjón Þórðarson | 16.09.2003 | 11:59Fundurinn
Ríkisstjórn Íslands er á flótta. Flótta undan eigin kosningaloforðum. Guðmundur Halldórsson formaður Eldingar reynir hvað hann getur til þess að koma í veg fyrir að Sjálfstæðismenn svíki eigin loforð heldur láti orð standa. Mér finnst óskiljanlegt að Guðmundur Halldórsson treysti sér enn til þess að starfa innan Sjálfstæðisflokksins, en sjávarútvegsráðherra hefur ítrekað beitt sér harkalega gegn hagsmunum Smábátafélagsins Eldingar.
Það var athyglisvert að hlýða á málflutning stjórnarliða á stórfundi á Ísafirði um línuívilnun á sunnudag, þegar þeir voru inntir eftir því hvort þeir ætluðu að halda orð sín um línuívilnun sem tæki gildi nú í haust.Sjálfstæðismennirnir Einar Kristinn Guðfinnsson og Sturla Böðvarsson svöruðu með mjög loðnum hætti, eitthvað á þessa leið: Að þeir styðji línuívilnun, en þó ekki meira en svo, að ef ríkisstjórnin, sem þeir styðja meira en línuívilnun, kemst að því að það eigi að svíkja loforð um línuívilnun, þá muni þeir jafnvel einnig svíkja loforð um línuívilnun.
Tveir stjórnarþingmenn, Kristinn H. Gunnarsson og Einar Oddur Kristjánsson, gáfu skýr svör um að þeir ætluðu að láta orð standa og að línuívilnunin sem lofað hafði verið tæki gildi nú í haust. Daginn eftir sagði sjávarútvegsráðherra að línuívilnun kæmi ekki til framkvæmda fyrr en haustið 2004.
Nú reynir á hvort að þessir herramenn, Einar Oddur og Kristinn H., segi eitt á Ísafirði og annað þegar þeir verða komnir suður á Austurvöll í október.
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins.
Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook