Grein

Stakkur 21. tbl. 2011 | 26.05.2011 | 09:29Ferðasumar í uppnámi

Eyjafjallajökull gaus fyrir rúmu ári, nánar til tekið 14. apríl 2010. Afleiðingar þess eldgoss urðu afdrifaríkar fyrir alla heimsbyggðina vegna mikillar röskunar á flugi um allan heim. Að sjálfsögðu hafði gosið alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem bjuggu í næsta nágrenni við Eyjafjallajökul. Ösku rigndi undir Eyjafjöllum og í Vestur Skaftafellssýslu samfara talverðum óþægindum fyrir bændur og búsmala. Flytja varð sauðfé í önnur héruð svo velferð þess yrði tryggð. Fólk varð þreytt á stöðugri baráttu við öskufall og öskuryk. Tún fóru undir ösku og landbúnaður átti í nokkrum erfiðleikum. En ólíkt því sem við Vestfirðingar þekkjum af náttúruhamförum lét enginn lífið og fólk meiddist ekki þótt vissulega sé erfitt að fást við afleiðingar þess að lífi og starfi þess sé ógnað.

Fólki um allan heim, ekki aðeins á Íslandi, varð því nokkuð brugðið þegar fréttist af eldgosi undir Vatnajökli í Grímsvötnum. En þetta er fjórða eldgosið í Vatnajökli á tæpum fimmtán árum, en hið fyrsta sem svo mikið öskufall fylgir sem raun ber vitni. Jökulhlaup og vatnsflóð hafa fylgt hinum, en nú er því spáð að svo verði ekki. En það er ekki furða þótt verð hlutabréfa í flugfélögum falli við tíðindi af eldgosi. Öskufallið fyrir rúmu ári hafði gríðarleg efnahagsleg áhrif á ferðaþjónustu og flugferðir. Ekki er að undra þótt áhyggjur blossi upp á ný og flugfélög og ferðaseljendur grípi til neyðarráðstafana. En lítum okkur nær og skoðum eigin garð. Hvernig er best að bregðast við því þegar fólk spyr hvort það sé vit í því að koma til hins sígjósandi Íslands?

Nú ríður á að hugsa leiðir til að nýta sér þá stöðu sem upp er komin. Ef litið er enn nær þá eru Vestfirðir ólíklegasti hluti landsins til þess að verða öskufalli að bráð og sennilegt að unnt sé að auglýsa Vestfirði sem óspillta náttúruperlu fyrir útlendinga. Þá verður að vísu að hafa í huga að sorpbrennslan í Funa er slæmur minnisvarði um mengun af mannavöldum. En henni hefur verið lokað. Á Vestfjörðum eru engar virkar eldstöðvar og bæði landslag og fólk eftirtektarvert og áhugavert fyrir fólk utan úr heimi þótt ekki sé verið að tala um að gera okkur að náttúrugarði og hafa okkur fyrir sýningargripi líkt og alþingismenn hafa látið í veðri vaka.

Ferðaþjónusta verður æ sterkari þáttur í atvinnusköpum þjóðarinnar og það gildir um Vestfirði ekki síður en aðra landshluta. Nú hefur iðnaðarráðherra kallað saman neyðarfund og vonandi veit það á gott. En best er að treysta fagmönnum, flugfélögum og gistisölum til þess að sinna sínu starfi með krafti. Við eigum öll mikið undir því.


Til baka - Prenta grein - Senda grein - Senda á Facebook

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi